FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. DESEMBER 2009


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum nóvembermánuði, metinn á föstu verði, var 13,2% minni en í nóvember 2008. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 3,9% miðað við sama tímabil 2008, sé hann metinn á föstu verði. 

Afli í tonnum
Aflinn í nóvember 2009 var 85.690 tonn samanborið við 117.837 tonn í sama mánuði árið áður.

Botnfiskafli dróst saman um 3.600 tonn frá nóvember 2008 og nam tæpum 37.600 tonnum. Þar af nam þorskaflinn rúmum 16.200 tonnum, sem er um 1.000 tonnum meira en árið áður. Ýsuaflinn nam tæpum 5.300 tonnum sem er um 2.900 tonnum minni afli en í nóvember 2008. Ufsaaflinn stóð nokkurn veginn í stað á milli ára og nam 6.300 tonnum. Rúm 4.200 tonn veiddust af karfa sem er um 2.800 tonnum minni afli en í nóvember 2008.

Afli uppsjávartegunda nam tæpum 45.500 tonnum sem er 29.000 tonnum minni afli en í nóvember 2008. Skýrist sú breyting nær alfarið af minni síldarafla. Í nóvember veiddust einnig tæp 1.500 tonn af gulldeplu en ekkert var veitt af henni í nóvember 2008.
 
Flatfiskaflinn var 1.927 tonn í nóvember 2009 og stóð nokkurn veginn í stað á milli ára. Skel- og krabbadýraafli nam 618 tonnum samanborið við 198 tonna afla í nóvember 2008. Af öðrum afla veiddust 108 tonn af sæbjúgu í mánuðinum.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2007. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.