FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. DESEMBER 2010


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum nóvembermánuði, metinn á föstu verði, var 0,5% minni en í nóvember 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 8,0% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði.

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 83.811 tonnum í nóvember 2010 samanborið við 85.698 tonn í sama mánuði árið áður.

Botnfiskafli stóð nánast í stað frá nóvember 2009, var um 37.500 tonn. Hlutur þorskafla þar af nam rúmum 17.000 tonnum og jókst um rúm 900 tonn frá fyrra ári. Ýsuaflinn var tæplega 5.600 tonn, sem er 271 tonni meiri afli en í nóvember 2009. Um 3.900 tonn veiddust af ufsa, sem er tæplega 2.400 tonnum minni afli en í nóvember 2009. Karfaaflinn jókst um tæp 800 tonn og nam um 5.000 tonn. Rúmlega 300 tonna aukning var í öðrum botnfiskafla milli ára og nam hann tæpum 5.900 tonnum.

Afli uppsjávartegunda var rúmlega 44.000 tonn, sem er um 1.400 tonnum minni afli en í nóvember 2009. Var sá afli líkt og árið áður nær eingöngu síld.

Flatfiskaflinn var tæp 1.400 tonn í nóvember 2010 samanborið við rúm 1.900 tonn árið áður. Skel- og krabbadýraaflinn var 518 tonn og dróst saman um 99 tonn frá fyrra ári.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2008. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.