FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. DESEMBER 2016

Fiskafli íslenskra skipa í nóvember var rúm 77 þúsund tonn sem er 18% minni afli en í nóvember 2015. Botnfiskaflinn nam tæpum 40 þúsund tonnum og stóð nokkurn veginn í stað samanborið við nóvember 2015. Uppistaðan í botnfiskaflanum var að venju þorskur en af honum veiddust tæp 27 þúsund sem er 10% aukning samanborið við sama mánuð ári fyrr. Töluverður samdráttur var hins vegar í öðrum botnfisktegundum.  Uppsjávarafli var tæp 36 þúsund tonn í nóvember, þar af veiddust tæp 32 þúsund tonn af síld. Afli uppsjávartegunda var 32% minni en í nóvember 2015, síldaraflinn dróst saman um 13% og afli kolmunna um 75%.

Á 12 mánaða tímabili frá desember 2015 til nóvember 2016 hefur heildarafli dregist saman um 255 þúsund tonn eða 19% samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr. Á tímabilinu hefur þorskafli aukist um 12% og botnfiskafli í heild um 6%. Samdráttur í heildarafla skýrist að mestu af minni loðnuafla.

Afli í október  metinn á föstu verðlagi var 6,1% minni en í nóvember 2015.

Fiskafli
  Nóvember   Desember-nóvember  
  2015 2016 % 2014-2015 2015-2016 %
Fiskafli á föstu verði            
Vísitala         89,5             84,0     -6,1      
             
Fiskafli í tonnum            
Heildarafli 94.749 77.319 -18 1.315.091 1.059.771 -19
Botnfiskafli 40.116 39.543 -1 433.533 461.127 6
  Þorskur 24.192 26.716 10 239.869 268.213 12
  Ýsa 3.817 3.189 -16 39.916 39.583 -1
  Ufsi 3.327 2.757 -17 48.776 49.083 1
  Karfi 5.608 5.060 -10 59.095 62.910 6
  Annar botnfiskafli 3.171 1.822 -43 45.877 41.338 -10
Flatfiskafli 1.697 1.526 -10 22.884 24.499 7
Uppsjávarafli 52.307 35.706 -32 848.637 561.240 -34
  Síld 36.530 31.792 -13 110.657 112.786 2
  Loðna 0 0 - 352.866 101.089 -71
  Kolmunni 15.740 3.914 -75 216.790 176.846 -18
  Makríll 37 0 -100 168.279 170.514 1
  Annar uppsjávarfiskur 0 0 -100 45 5 -88
Skel-og krabbadýraafli 629 543 -14 9.983 12.818 28
Annar afli 0 0 - 54 86 58

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fiskitolur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.