FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 13. NÓVEMBER 2008


Afli á föstu verði

Heildarafli íslenskra skipa í október, metinn á föstu verði, var 6,2% minni en í október 2007. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 4,3% miðað við sama tímabil 2007, sé hann metinn á föstu verði. 

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 91.411 tonnum í október 2008 samanborið við 98.133 tonn í október 2007.

Botnfiskafli jókst um 3.400 tonn frá október 2007 og nam tæpum 39.900 tonnum. Aukningu í botnfiskafla má að mestu rekja til þess að afli karfa jókst um 7.100 frá október 2007. Ýsuaflinn dróst saman um tæp 3.900 tonn, ufsaaflinn um tæp 1.100 tonn og þorskaflinn um tæp 600 tonn miðað við október 2007.

Afli uppsjávartegunda nam rúmum 49.200 tonnum og var nær eingöngu síld. Uppsjávarafli dróst saman um rúm 10.300 tonn frá október 2007. Síldaraflinn nam 48.700 tonnum og dróst saman um tæp 10.000 tonn frá október 2007. Afli kolmunna nam 417 tonnum í október og afli makríls 110 tonnum. Flatfiskaflinn var rúm 1.300 tonn í október og dróst saman um tæp 100 tonn frá fyrra ári. Skel- og krabbadýraafli nam 750 tonnum og jókst um rúm 70 tonn miðað við október 2007.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.