FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. OKTÓBER 2007


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum septembermánuði var 33,7% minni en í september 2006, sé hann metinn á föstu verði. Það sem af er árinu hefur fiskaflinn dregist saman um 5,7% á föstu verði miðað við sama tímabil 2006.

Athygli er vakin á því að birtar magnvísitölur á árinu 2007 hafa verið leiðréttar vegna villu í útreikningum. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.   

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 44.865 tonnum í september 2007 samanborið við 87.200 tonn í september 2006.

Botnfiskafli dróst saman um 8.300 tonn frá septembermánuði 2006 og nam tæpum 27.500 tonnum. Þorskafli dróst saman um tæplega 6.000 tonn, karfaaflinn um rúm 1.600 tonn og ufsaaflinn um 1.500 tonn. Ýsuafli stendur hins vegar í stað.

Flatfiskaflinn dróst saman um 900 tonn milli ára. Afli uppsjávartegunda nam tæpum 16.000 tonnum sem að stærstum hluta var síld. Samdráttur í uppsjávarafla nemur rúmum 33.000 tonnum frá septembermánuði 2006 þegar 49.000 tonn af síld bárust á land. Skel- og krabbadýraafli var 350 tonn samanborið við 250 tonna afla í september 2006.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.