FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. OKTÓBER 2008


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í september, metinn á föstu verði, var 22,3% meiri en í september 2007. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 4,1% miðað við sama tímabil 2007, sé hann metinn á föstu verði. 

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 68.030 tonnum í september 2008 samanborið við 51.075 tonn í september 2007.

Botnfiskafli jókst um 3.700 tonn frá september 2007 og nam rúmum 31.200 tonnum. Afli karfa jókst um 1.600 tonn, þorskaflinn jókst einnig um tæp 1.600 tonn og afli ýsu og ufsa jókst um rúm 600 tonn miðað við september 2007.

Afli uppsjávartegunda nam rúmum 33.200 tonnum og var að stærstum hluta síld og makríll. Aukning í uppsjávarafla nemur tæplega 11.300 tonnum frá því í september 2007. Síldaraflinn nam 26.900 tonnum og jókst um tæp 6.200 tonn frá september 2007. Afli makríls nam 5.900 tonnum í september samanborið við 450 tonna afla í september 2007. Flatfiskaflinn var rúm 1.900 tonn í september og jókst um rúm 700 tonn frá fyrra ári. Veruleg aukning var í skel- og krabbadýraafla, sem nam 1.520 tonnum og jókst um tæp 1.200 tonn miðað við september 2007.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.