FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 13. OKTÓBER 2010


Afli á föstu verði
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum septembermánuði, metinn á föstu verði, var 2,2% minni en í september 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 9,9% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði.

Afli í tonnum
Aflinn nam alls 93.736 tonnum í september 2010 samanborið við 77.464 tonn í sama mánuði árið áður.

Botnfiskafli dróst saman um rúm 2.600 tonn frá september 2009 og nam um 33.000 tonnum. Þar af nam þorskaflinn tæpum 13.200 tonnum, sem er samdráttur um tæp 600 tonn frá fyrra ári. Ýsuaflinn nam 4.400 tonnum, sem er um 2000 tonnum minni afli en í september 2009. Um 5.900 tonn veiddust af ufsa, sem er um 1.300 tonnum meiri afli en í september 2009. Karfaaflinn dróst saman um tæp 500 tonn og nam um 4.600 tonnum. Rúmlega 800 tonna samdráttur var í öðrum botnfiskafla milli ára og nam hann rúmum 4.800 tonnum.

Afli uppsjávartegunda nam tæpum 57.500 tonnum, sem er um 19.300 tonnum meiri afli en í september 2009. Af uppsjávartegundum veiddust tæp 42.000 tonn af síld og 13.500 tonn af makríl.

Flatfiskaflinn var rúm 2.000 tonn í september 2010 samanborið við tæp 2.700 tonn árið áður. Skel- og krabbadýraaflinn nam tæpum 1.100 tonnum og jókst um tæp 200 tonn frá fyrra ári.

Munur á afla á föstu verði og í tonnum
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2008. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.