Heildarframleiðsla af óslægðum fiski í fiskeldi árið 2025 var 64.417 tonn sem er 17% aukning frá árinu 2024. Langmest var framleitt af laxi eða 58.717 tonn, 19% aukning frá árinu 2024. Magn bleikju var 5.141 tonn, jókst um 8%, en aðrar tegundir voru undir 1.000 tonnum.
Útflutningsverðmæti allra fiskeldistegunda dróst saman um 1% á milli ára og var 53,4 milljarðar króna árið 2025. Þar af voru laxaafurðir um 48,7 milljarðar. Magn útfluttra afurða var þó 12% meira en árið 2024 eða 48.585 tonn.
Gögn um fiskeldisframleiðslu í Evrópu ná til ársloka 2024 og sýna að Noregur var langstærsti framleiðandi á eldisfiski með rúm 1,6 milljón tonna. Ísland var eins og áður stærsti framleiðandi bleikju með 4.778 tonn. Lítið er framleitt af regnbogasilungi á Íslandi en Noregur, Frakkland og Ítalía framleiða mest af honum.