FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 27. FEBRÚAR 2008

Í lok árs 2007 voru á skrá hjá Siglingastofnun 1.642 fiskiskip og hafði þeim fækkað um 50 frá fyrra ári. Fjöldi vélskipa var alls 834 og var samanlögð stærð þeirra 91.656 brúttótonn. Vélskipum fækkaði á milli ára um 18 og dróst flotinn saman um 5.210 brúttótonn. Togarar voru 64 og fjölgaði um einn frá árinu á undan. Heildarstærð togaraflotans var 74.067 brúttótonn og hafði minnkað um 4.181 brúttótonn frá árinu 2006. Opnir fiskibátar voru 744 og 3.556 brúttótonn að stærð. Opnum fiskibátum fækkaði um 33 milli ára og heildarstærð þeirra dróst saman um 165 brúttótonn.

Fiskiskipastóllinn í árslok 2007 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.