FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 02. MARS 2009

Í lok árs 2008 voru 1.529 fiskiskip á skrá hjá Siglingastofnun og hafði þeim fækkað um 113 frá árinu áður. Fjöldi vélskipa var alls 769 og samanlögð stærð þeirra 86.390 brúttótonn. Vélskipum fækkaði um 65 á milli ára og dróst flotinn saman um 5.266 brúttótonn. Togarar voru alls 60 og fækkaði um fjóra frá árinu á undan. Heildarstærð togaraflotans var 69.889 brúttótonn og hafði minnkað um 4.177 brúttótonn frá árinu 2007. Opnir fiskibátar voru 700 talsins og 3.348 brúttótonn að stærð. Opnum fiskibátum fækkaði um 44 milli ára og heildarstærð þeirra dróst saman um 208 brúttótonn.

Fiskiskipastóllinn í árslok 2008 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.