FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 22. MARS 2010

Út er komið hefti í efnisflokknum Sjávarútvegur  þar sem birtar eru niðurstöður athugana Hagstofunnar um fiskveiðar og fiskvinnslu fyrir árið 2008.

Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns eða EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegsins jókst milli áranna 2007 og 2008. Í fiskveiðum og vinnslu hækkaði þetta hlutfall (án milliviðskipta) úr 19½% í 27½%, í fiskveiðum úr 21½% árið 2007 í 25% af tekjum árið 2008 og í fiskvinnslu úr 7% í 17%. Hreinn hagnaður (EBT), skv. árgreiðsluaðferð, í sjávarútvegi árið 2008 nam 19% samanborið við 10½% hagnað árið áður. Hagnaður var áfram á rekstri mjölvinnslu og á rekstri loðnuskipa á árinu 2008.

Heildareignir sjávarútvegs í árslok 2008 voru 504 milljarðar króna, heildarskuldir 564 milljarður og eigið fé því neikvætt um 60 milljarða.og eigið fé 110 milljarðar.

Hagur fiskveiða og fiskvinnslu 2008 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.