Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns eða EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegsins jókst milli áranna 2008 og 2009. Í fiskveiðum og vinnslu hækkaði þetta hlutfall (án milliviðskipta) úr 27,4% í 31%, í fiskveiðum úr 25% árið 2008 í 26,3% af tekjum árið 2009 og í fiskvinnslu úr 17% í tæplega 21%. Hreinn hagnaður (EBT), skv. árgreiðsluaðferð, í sjávarútvegi árið 2008 nam 22% samanborið við 19,1% hagnað árið áður. Hagnaður var áfram á rekstri mjölvinnslu og á rekstri loðnuskipa á árinu 2009.
Heildareignir sjávarútvegs í árslok 2009 voru 590 milljarðar króna, heildarskuldir 564 milljarður og eigið fé jákvætt um tæpa 27 milljarða.
Þessar niðurstöður eru meðal efnis í nýju hefti Hagtíðinda þar sem birtar eru niðurstöður athugana Hagstofunnar um fiskveiðar og fiskvinnslu fyrir árið 2009.
Hagur fiskveiða og fiskvinnslu 2009 - Hagtíðindi