FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 29. JÚNÍ 2017

Endurskoðun á talnagögnum um skiptingu stærðarflokka á skipaflotanum leiddi í ljós ósamræmi í áður útgefnum niðurstöðum. Ný Hagtíðindi um hag veiða og vinnslu 2015 innihalda endurskoðaðar töflur þar sem við á en eldri tölur eru birtar í sviga til samanburðar. Jafnframt þessari endurskoðun hafa verið tekin inn ný gögn sem ekki voru aðgengileg í fyrri útgáfu (20. janúar 2017).

Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns, EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegs hækkaði milli áranna 2014 og 2015. Í fiskveiðum og -vinnslu hækkaði hlutfallið (án milliviðskipta) úr 24,3% í 27,3% (27%), í fiskveiðum úr 20,5% árið 2014 í 26,1% (25,7%) af tekjum árið 2015 en lækkaði í fiskvinnslu úr 14,2% í 13,5%.

Hreinn hagnaður (EBT) í sjávarútvegi, samkvæmt árgreiðsluaðferð, nam 17,8% (17,5%) árið 2015 samanborið við 15,1% árið áður. Í fjárhæðum nam hagnaðurinn 46,2 (45,4) milljörðum króna eftir að gjaldfærð hefur verið árgreiðsla að fjárhæð 24,4 milljarðar. Sé miðað við hefðbundna uppgjörsaðferð er niðurstaðan 18,2% hagnaður 2015 eða 48,3 (47,1) milljarðar, samanborið við 15,1% hagnað árið 2014.

Samkvæmt efnahagsreikningi voru heildareignir sjávarútvegs í árslok 2015 tæpir 593 milljarðar króna, heildarskuldir 372 (370) milljarðar og eigið fé rúmir 221 (220) milljarður.

Hagur veiða og vinnslu 2015 — endurskoðun — Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang thjodhagsreikningar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.