FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 17. MARS 2015

Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns, EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegs minnkaði milli áranna 2012 og 2013. Í fiskveiðum og -vinnslu lækkaði  hlutfallið (án milliviðskipta) úr 30% í 26,5%, lækkaði í fiskveiðum úr 25% árið 2012 í 20,1% af tekjum árið 2013 og lækkaði í fiskvinnslu úr 17,2% í 17%.

Hreinn hagnaður (EBT) í sjávarútvegi, samkvæmt árgreiðsluaðferð, nam 18% árið 2013 samanborið við 21,5% árið áður. Í fjárhæðum nam hagnaðurinn 49 milljörðum króna eftir að gjaldfærð hefur verið árgreiðsla að fjárhæð 23,1 milljarðar. Sé miðað við hefðbundna uppgjörsaðferð er niðurstaðan 22,4% hagnaður 2013 eða 61 milljarðar, samanborið við 17,5% hagnað árið 2012, enda gætir ekki beinna áhrifa af breytingum á gengi við mat á fjármagnskostnaði sé árgreiðsluaðferðin notuð.

Samkvæmt efnahagsreikningi voru heildareignir sjávarútvegs í árslok 2013 tæpir 530 milljarðar króna, heildarskuldir rúmir 380 milljarðar og eigið fé rúmir 149 milljarðar.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í  Hagtíðindum um hag veiða og vinnslu sem gefin hafa verið út.


Hagur veiða og vinnslu 2013 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.