FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 01. MARS 2018

Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns, EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegs lækkaði milli áranna 2015 og 2016. Í fiskveiðum og -vinnslu lækkaði hlutfallið (án milliviðskipta) úr 27,3% í 25,4%, lækkaði í fiskveiðum úr 26,1% árið 2015 í 24,2% af tekjum árið 2016 og í fiskvinnslu úr 13,5% í 11,9%.

Hreinn hagnaður (EBT) í sjávarútvegi, samkvæmt árgreiðsluaðferð, nam 14,4% árið 2016 samanborið við 17,8% árið áður. Í fjárhæðum nam hagnaðurinn 31,7 milljörðum króna eftir að gjaldfærð hefur verið árgreiðsla að fjárhæð 24,3 milljarðar. Sé miðað við hefðbundna uppgjörsaðferð er niðurstaðan 24% hagnaður 2016 eða 52,8 milljarður, samanborið við 18,7% hagnað árið 2015.

Samkvæmt efnahagsreikningi voru heildareignir sjávarútvegs í árslok 2016 tæpir 621 milljarður króna, heildarskuldir tæpir 360 milljarðar og eigið fé rúmir 262 milljarðar.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í Hagtíðindum um hag veiða og vinnslu.

 

Hagur veiða og vinnslu 2016 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fiskitolur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.