FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. DESEMBER 2021

Hagnaður fyrirtækja í fiskveiðum og vinnslu fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns, EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegs jókst á milli áranna 2019 og 2020. Frá árinu 2019 hækkaði hlutfallið (án milliviðskipta) úr 30,6% í 31,9%, í fiskveiðum úr 23,1% árið 2019 í 24,2% af tekjum árið 2020 og í fiskvinnslu úr 15,9% í 16,4%.

Hreinn hagnaður (EBT) fyrirtækja í fiskveiðum og vinnslu, samkvæmt árgreiðsluaðferð, nam 20,1% árið 2020 samanborið við 19% árið áður. Í fjárhæðum nam hagnaðurinn 49 milljörðum króna eftir að gjaldfærð hefur verið árgreiðsla að fjárhæð 29 milljarðar. Sé miðað við hefðbundna uppgjörsaðferð nam hagnaðurinn 28 milljörðum króna eða 11,5% af tekjum árið 2020 borið saman við 42 milljarða króna eða 17,4% af tekjum árið 2019.

Samkvæmt efnahagsreikningi voru heildareignir sjávarútvegarins tæpir 830 milljarðar króna í árslok 2020, heildarskuldir rúmir 496 milljarðar króna (hækkun um 4%) og eigið fé tæpir 333 milljarðar króna.

Hagur veiða og vinnslu 2020 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang thjodhagsreikningar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.