FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 09. JANÚAR 2025

Hagnaður fyrirtækja í fiskveiðum og vinnslu fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns, EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegs minnkaði á milli áranna 2022 og 2023. Frá árinu 2022 lækkaði hlutfallið (án milliviðskipta) úr 37% í 36,5%, hækkaði í fiskveiðum úr 24,6% árið 2022 í 24,9% af tekjum árið 2023 og lækkaði í fiskvinnslu úr 21,1% í 18,3%.

Hreinn hagnaður (EBT) þessara fyrirtækja samkvæmt árgreiðsluaðferð dróst saman á milli ára og nam þannig 24% árið 2023 samanborið við 26,3% árið 2022. Í fjárhæðum nam hagnaðurinn tæpum 73 milljörðum króna eftir að gjaldfærð hefur verið árgreiðsla að fjárhæð rúmum 38 milljörðum króna. Sé miðað við hefðbundna uppgjörsaðferð nam hagnaðurinn rúmum 70 milljörðum króna eða 23,2% af tekjum árið 2023 borið saman við 27,3% árið áður.

Samkvæmt efnahagsreikningi voru heildareignir í sjávarútvegi í árslok 2023 tæpir 1.059 milljarðar króna, heildarskuldir rúmir 554 milljarðar króna og eigið fé rúmir 505 milljarðar króna.

Hagur veiða og vinnslu 2023 — Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.