Hagnaður fyrirtækja í fiskveiðum og vinnslu fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns, EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegs minnkaði á milli áranna 2023 og 2024. Frá árinu 2023 lækkaði hlutfallið (án milliviðskipta) úr 36,5% í 29,7%, það lækkaði í fiskveiðum úr 24,9% árið 2023 í 18,5% af tekjum árið 2024 og hækkaði í fiskvinnslu úr 18,3% í 19,2%.
Hreinn hagnaður (EBT) þessara fyrirtækja, samkvæmt árgreiðsluaðferð minnkaði á milli ára, nam 16% árið 2024 samanborið við 25% árið 2023. Í fjárhæðum nam hagnaðurinn tæpum 46 milljörðum króna eftir að gjaldfærð hefur verið árgreiðsla að fjárhæð tæpum 40 milljörðum króna. Sé miðað við hefðbundna uppgjörsaðferð nam hagnaðurinn tæpum 47 milljörðum króna eða 16,2% af tekjum árið 2024 borið saman við 23,2% árið áður.
Samkvæmt efnahagsreikningi voru heildareignir í sjávarútvegi í árslok 2024 tæpir 1.093 milljarðar króna, heildarskuldir rúmir 560 milljarðar króna og eigið fé rúmir 533 milljarðar króna.
Hagur veiða og vinnslu 2024 — Hagtíðindi