Árið 2010 var heimsafli 89,5 milljónir tonna og dróst saman um eina milljón tonna frá árinu 2009, samkvæmt tölum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO). Kyrrahafið gaf mestan afla og stærsta einstaka fisktegundin var Perúansjósa. Asía var sú heimsálfa sem átti stærsta hlutann í heimsaflanum, næst kom Ameríka og svo Evrópa. Kínverjar veiddu mest allra þjóða árið 2010 en Norðmenn, sem veiddu mest allra Evrópuþjóða, voru í 10. sæti heimslistans. Íslendingar veiddu næst mest allra Evrópuþjóða en voru í 19. sæti heimslistans, sama sæti og í fyrra.
Tölur frá Alþjóðahafrannsóknarráðinu (ICES) um afla erlendra ríkja við Ísland árið 2011 liggja ekki enn fyrir og verða birtar um leið og þær berast Hagstofu.