Út er komið ritið Innflutt hráefni til fiskvinnslu 2007. Í ritinu kemur m.a. fram að innflutt hráefni til fiskvinnslu var 105.202 tonn árið 2007 og dróst saman um 20.444 tonn frá fyrra ári eða 16,3%. Verðmæti þessa innflutnings var 5,7 milljarðar króna sem er tæplega 500 milljónum króna hærri fjárhæð en árið 2006. Minna var flutt inn af ýsu, steinbít, loðnuhrognum og norsk-íslenskri síld en árið áður. Aukning var í innflutningi á þorski, loðnu, kolmunna og rækju. Verðmæti innflutts hráefnis nam 11% af verðmæti þess afla sem tekinn var til vinnslu hérlendis.
Innflutt hráefni til fiskvinnslu 2007 - Hagtíðindi
Talnaefni