FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 06. JÚNÍ 2008

Út er komið ritið Innflutt hráefni til fiskvinnslu 2007. Í ritinu kemur m.a. fram að  innflutt hráefni til fiskvinnslu var 105.202 tonn árið 2007 og dróst saman um 20.444 tonn frá fyrra ári eða 16,3%. Verðmæti þessa innflutnings var 5,7 milljarðar króna sem er tæplega 500 milljónum króna hærri fjárhæð en árið 2006. Minna var flutt inn af ýsu, steinbít, loðnuhrognum og norsk-íslenskri síld en árið áður. Aukning var í innflutningi á þorski, loðnu, kolmunna og rækju. Verðmæti innflutts hráefnis nam 11% af verðmæti þess afla sem tekinn var til vinnslu hérlendis.

Innflutt hráefni til fiskvinnslu 2007 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.