FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. ÁGÚST 2024

Í júlí lönduðu íslensk skip rúmum 78,3 þúsund tonnum af afla sem er 23% minni afli en í júlí 2023. Mikill samdráttur var í veiðum á uppsjávarafla.

Heildarafli á tólf mánaða tímabilinu frá ágúst 2023 til júlí 2024 var tæplega 1,1 milljón tonn sem er 27% minna en aflinn á sama tólf mánaða tímabili ári fyrr. Helsta ástæðan fyrir þessum samdrætti er engin loðnuveiði.

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fiskitolur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.