FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. JÚLÍ 2024

Í júní lönduðu íslensk skip tæplega 28 þúsund tonnum af afla sem er 21% minna en í júní 2023. Samdráttur var í veiðum á nær öllum botnfisktegundum og uppsjávarafli var enginn.

Heildarafli á tólf mánaða tímabilinu frá júlí 2023 til júní 2024 var tæplega 1,1 milljón tonn sem er 24% minna en aflinn á sama tólf mánaða tímabili ári fyrr. Helsta ástæðan fyrir þessum samdrætti var loðnubrestur..

Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands (Lóðs), útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fiskitolur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.