FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 24. SEPTEMBER 2024

Flutt voru út tæplega 685 þúsund tonn af sjávarafurðum á árinu 2023 sem er 57 þúsund tonnum minna en árið áður. Útflutningsverðmæti sjávarafurða síðasta árs var um 353 milljarðar króna en var 359 milljarðar króna árið 2022.

Frystar sjávarafurðir voru 44% af útflutningsverðmætinu, ísaðar afurðir voru 25% og mjöl/lýsi um 20%. Af einstökum fisktegundum var verðmæti frystra þorskafurða mest eða tæpir 50 milljarðar króna og næst kom verðmæti ísaðs þorsks, um 38 milljarðar.

Mest magn var flutt út til Noregs eða sem nemur tæpum 20% af heildarmagninu en 11% af útflutningsverðmæti sjávarafurða. Næstmest var flutt út til Bretlands, um 13% af heildarmagninu og 16% útflutningsverðmætisins.

Verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða, sem er samtala útflutnings og birgðabreytinga fiskafurða, var rúmlega 353 milljarðar árið 2023 sem var nær óbreytt frá fyrra ári. Á föstu verðlagi jókst útflutningsframleiðsla um 9% miðað við verðlag ársins 2012.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fiskitolur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.