FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 17. JÚLÍ 2006

Út er komið ritið Útflutningur og útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2005. Í ritinu kemur m.a. fram að á árinu 2005 nam verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða 112 milljörðum króna og dróst saman um 5,7% frá fyrra ári. Verð sjávarafurða í íslenskum krónum hélst lítið breytt þegar á heildina er litið og dróst því framleiðslan, mæld á föstu verði ársins 2004, því nær jafn mikið saman eða um 5,6%. Fluttar voru út sjávarafurðir að verðmæti 110,1 milljarðar króna. Útflutningur dróst saman milli ára, í tonnum um 8,8% en í verðmæti um 9,5%. Útflutt afurðaverðmæti allra aflategunda nema uppsjávarfisks dróst saman frá fyrra ári.

Frystar afurðir skiluðu yfir helmingi útflutningsverðmætis. Af einstökum afurðum var verðmæti blautverkaðs saltfisks úr þorski mest, 11,2 milljarðar króna. Verðmæti ísaðra afurða jókst en tekjur af útflutningi saltaðra afurða drógust saman. Sem fyrr er Evrópska efnahagssvæðið veigamesta markaðssvæðið en þangað voru fluttar út sjávarafurðir fyrir 85,6 milljarða króna. Það er 9,2% minna en árið 2004 en samdráttar gætti í útflutningsverðmæti til allra helstu viðskiptalanda.

Útflutningur og útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2005 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.