FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 14. MAÍ 2007

Út er komið ritið Útflutningur og útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2006. Í ritinu kemur m.a. fram að á árinu 2006 nam verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða 123,6 milljörðum króna og jókst um 10,1% frá fyrra ári. Framleiðslan mæld á föstu verði dróst hins vegar saman um 6,9%. Fluttar voru út sjávarafurðir að verðmæti 124,4 milljarðar króna og jókst verðmæti þeirra milli ára um 12,9% en dróst saman í tonnum um 12,4%. Útflutt afurðaverðmæti allra aflategunda nema skel- og krabbadýra og annarra sjávarafurða jókst frá fyrra ári. Frystar afurðir skiluðu yfir helmingi útflutningsverðmætis. Af einstökum afurðum var verðmæti blautverkaðs saltfisks úr þorski mest, 11,4 milljarðar króna. Verðmæti ísaðra afurða sem hlutfall af heild jókst en samdráttur var í frystum afurðum. Af heildarútflutningi sjávarafurða fór 78,4% til  Evrópska efnahagssvæðisins, 7,6% til Norður Ameríku og 6,7% til Asíu.

Útflutningur og útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2006 - Hagtíðndi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.