FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 13. MAÍ 2008

Út er komið ritið Útflutningur og útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2007. Í ritinu kemur m.a. fram að á árinu 2007 nam verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða 127 milljörðum króna og jókst um 2,8% frá fyrra ári. Framleiðslan mæld á föstu verði dróst hins vegar saman um 2,3%. Fluttar voru út sjávarafurðir að verðmæti 127,6 milljarðar króna og jókst verðmæti þeirra milli ára um 2,6% en dróst saman í tonnum um 6,3%. Útlutt afurðaverðmæti allra aflategunda nema skel- og krabbadýrum og flatfiski jókst frá fyrra ári. Líkt og árið áður skiluðu frystar afurðir um helmingi útflutningsverðmætis. Af einstökum afurðum vóg verðmæti blautverkaðs saltfisks úr þorski mest, 12,7 milljarða króna. Af heildarútflutningi sjávarafurða fór 80% til  Evrópska efnahagssvæðisins, 6,2% til Norður Ameríku og 6,1% til Asíu.

Útflutningur og útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2007 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.