FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 18. MAÍ 2011


Út er komið ritið Útflutningur og útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2010. Í ritinu kemur m.a. fram að á árinu 2010 nam verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða rúmum 220 milljörðum króna og jókst um 10% frá fyrra ári. Er þar um að ræða samtölu útflutnings og birgðabreytinga sjávarafurða. Framleiðslan mæld á föstu verði jókst um 6%. Fluttar voru út sjávarafurðir að verðmæti 220,5 milljarðar króna og jókst verðmæti þeirra milli ára um 5,7% en dróst saman í magni um 5,5%. Árið 2010 voru flutt út 632 þúsund tonn samanborið við 669 þúsund tonn árið áður. Frystar afurðir skiluðu 55% af heildarútflutningsverðmæti. Af einstökum afurðum vóg verðmæti blautverkaðs saltfisks úr þorski mest, 13,5 milljarðar króna. Af heildarútflutningi sjávarafurða fór 73% til Evrópska efnahagssvæðisins, 9,1 % til Asíu og 5,3% til Norður-Ameríku.

Útflutningur og útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2010 - Hagtíðndi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.