FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 16. JÚNÍ 2004

Út er komið hefti í efnisflokknum Sjávarútvegur og ber það heitið Útflutningur sjávarafurða 2003. Í ritinu kemur m.a. fram að útflutningur sjávarafurða árið 2003 nam 809 þúsund tonnum að verðmæti 113,7 milljarðar króna. Frá árinu 2002 nemur samdráttur í magni 0,6% en 11,6% í verðmæti. Um helmingur verðmætis útfluttra sjávarafurða er vegna frystra afurða en sú einstaka afurð sem skilaði mestum verðmætum (útflutningstekjum) var blautverkaður saltfiskur úr þorski, alls 12,6 milljörðum króna. Evrópska efnahagssvæðið er mikilvægasta markaðssvæðið en þar voru á árinu 2003 seldar íslenskar sjávarafurðir fyrir 86,6 milljarða eða 76% heildarverðmætis útfluttra sjávarafurða.

Útflutningur sjávarafurða 2003 - útgáfur  

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.