FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 24. JÚNÍ 2025

Flutt voru út rúmlega 624 þúsund tonn af sjávarafurðum árið 2024 sem er um 60 þúsund tonnum minna en árið 2023. Breytingin stafar að mestu vegna aflabrests í loðnuveiðum.

Heildarútflutningsverðmæti dróst saman um 1,8% á milli áranna 2023 og 2024, fór úr tæpum 353 milljörðum króna árið 2023 í 347 milljarða ári seinna. Árið 2024 fékkst mest verðmæti fyrir frystar sjávarafurðir, um 150 milljarðar króna, en tæpir 94 milljarðar króna fyrir ísaðar afurðir. Þorskur var verðmætasta útflutningsafurðin, um 143 milljarðar.

Árið 2024 var mest af sjávarafurðum flutt út til Noregs, tæpt 131 þúsund tonn að verðmæti 36 milljarða króna. Tæp 92 þúsund tonn voru flutt út til Bretlands að verðmæti 60 milljarða króna.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fiskitolur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.