FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 30. MARS 2017

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir árið 2016 nam aflaverðmæti íslenskra skipa 133 milljörðum króna samanborið við ríflega 151 milljarð árið 2015. Aflaverðmæti úr sjó hefur því minnkað um rúma 18 milljarða eða sem nemur 12,1% samdrætti á milli ára. Aflaverðmæti í desember nam rúmum 6,5 milljörðum samanborið við 8,5 milljarða í desember 2015.

Aflaverðmæti botnfisks nam 92,7 milljörðum á árinu sem er samdráttur um 9,9% frá fyrra ári. Af botnfisktegundum var þorskur sem fyrr verðmætastur en aflaverðmæti þorsks á síðasta ári nam 58 milljörðum króna sem er 4,8% minna en árið 2015. Verðmæti flatfiskafla var 9 milljarðar á síðasta ári sem er 7,9% samdráttur frá fyrra ári. Verðmæti uppsjávarafla nam 27,8 milljörðum sem er 19,6% minna en árið 2015. Aflaverðmæti síldar jókst um 11% en verðmæti loðnu dróst verulega saman á milli ára, eða um 60,9%. Verðmæti skel- og krabbadýra var tæpir 3,5 milljarðar á síðasta ári sem er 12,9% samdráttur frá árinu 2015.

Verðmæti afla, sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 70,2 milljörðum króna árið 2016 sem er samdráttur um13,9%  frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands nam rúmum 19,5 milljörðum og dróst saman um 4,1%. Aflaverðmæti sjófrystingar dróst einnig saman á milli ára, nam rúmum 37 milljörðum samanborið við tæpa 44 milljarða árið 2015.

Verðmæti afla janúar–desember 2016
Milljónir króna Desember Janúar-desember
  2015 2016 % 2015 2016 %
             
Verðmæti alls 8.482,7 6.566,1 -22,6 151.301,1 133.028,1 -12,1
             
Botnfiskur 7.061,1 4.973,4 -29,6 102.853,8 92.671,9 -9,9
Þorskur 4.722,0 3.206,8 -32,1 60.963,6 58.057,7 -4,8
Ýsa 840,3 525,4 -37,5 11.467,5 9.277,6 -19,1
Ufsi 415,5 414,2 -0,3 9.528,5 8.475,0 -11,1
Karfi 736,4 647,5 -12,1 13.442,5 11.121,5 -17,3
Úthafskarfi 0,0 0,0 568,0 597,4 5,2
Annar botnfiskur 346,8 179,5 -48,2 6.883,7 5.142,6 -25,3
Flatfisksafli 671,1 329,1 -51,0 9.835,2 9.059,6 -7,9
Uppsjávarafli 670,6 1.225,3 82,7 34.624,3 27.824,9 -19,6
Síld 402,6 705,9 75,3 5.932,3 6.583,7 11,0
Loðna 0,0 0,0 12.661,7 4.947,9 -60,9
Kolmunni 268,0 519,4 93,8 5.666,4 5.409,0 -4,5
Makríll 0,0 0,0 10.359,7 10.884,2 5,1
Annar uppsjávarafli 0,0 0,0 4,1 0,1 -97,9
Skel- og krabbadýraafli 79,9 38,2 -52,2 3.987,8 3.471,7 -12,9
Humar 1,6 0,0 -99,7 805,4 889,6 10,5
Rækja 54,0 14,9 -72,4 2.974,5 2.190,1 -26,4
Annar skel- og krabbad.afli 24,3 23,3 -4,0 207,9 392,0 88,6
Annar afli 0,0 0,0 0,0 0,0
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar–desember 2016
Milljónir króna Desember Janúar-desember
  2015 2016 % 2015 2016 %
             
Verðmæti alls 8.482,7 6.566,1 -22,6 151.301,1 133.028,1 -12,1
             
Til vinnslu innanlands 3.858,6 3.533,9 -8,4 81.588,7 70.216,7 -13,9
Á markað til vinnslu innanlands 1.153,3 842,3 -27,0 20.369,8 19.531,7 -4,1
Sjófryst til endurvinnslu innanlands 0,0 0,0 58,4 0,0
Í gáma til útflutnings 307,4 146,5 -52,4 4.705,3 5.045,8 7,2
Sjófryst 3.142,1 2.025,9 -35,5 43.925,9 37.105,8 -15,5
Aðrar löndunartegundir 21,3 17,5 -17,6 652,8 1.128,2 72,8
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar–desember 2016
Milljónir króna Desember Janúar-desember
  2015 2016 % 2015 2016 %
             
Verðmæti alls 8.482,7 6.566,1 -22,6 151.301,1 133.028,1 -12,1
             
Höfuðborgarsvæði 2.880,8 1.677,3 -41,8 38.323,1 32.590,9 -15,0
Vesturland 271,3 326,9 20,5 7.152,5 6.815,4 -4,7
Vestfirðir 534,4 397,3 -25,7 8.103,3 7.677,4 -5,3
Norðurland vestra 663,1 492,5 -25,7 10.258,1 8.859,5 -13,6
Norðurland eystra 938,9 862,0 -8,2 18.159,8 17.292,7 -4,8
Austurland 718,3 1.078,0 50,1 23.863,0 18.594,7 -22,1
Suðurland 664,0 397,0 -40,2 15.095,1 12.864,9 -14,8
Suðurnes 1.473,9 1.179,4 -20,0 25.175,0 22.385,3 -11,1
Útlönd 338,1 155,7 -54,0 5.171,0 5.947,4 15,0

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fiskitolur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.