Aflaverðmæti janúarmánaðar var 5,7 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa¹ nam 5,7 milljörðum króna í janúar 2007 samanborið við 3,6 milljarða í janúar 2006. Aflaverðmæti hefur aukist um 2,1 milljarða eða 58,8% milli ára.
Aflaverðmæti botnfisks var 4,6 milljarðar en var 3 milljarðar í janúar 2006 og er aukningin því 50,9%. Verðmæti þorskafla var 2,4 milljarðar og jókst um 34,1%. Aflaverðmæti ýsu nam tæpum 1 milljarði, sem er 57,4% aukning, og ufsaaflinn jókst að verðmæti um 66,3%, var 221 milljón.
Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 25,4%, nam 245 milljónum. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 299,4% og nam 866 milljónum. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam 773 milljónum.
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu, var 2,3 milljarðar króna. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands nam 1,3 milljarði. Aflaverðmæti sjófrystingar var 1,2 milljarðar og verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 693 milljónum.
Rétt er að vekja athygli á því að aflaverðmæti í janúar 2006 var með minna móti miðað við fyrri ár.
Verðmæti afla í janúar 2007 | ||||
Milljónir kr. | Breytingar frá | |||
Janúar | fyrra ári í % | |||
2006 | 2007 | Jan.– janúar | ||
Verðmæti alls | 3.569,5 | 5.669,1 | 58,8 | |
Botnfiskur | 3.021,0 | 4.557,7 | 50,9 | |
Þorskur |
1.819,8 | 2.439,6 | 34,1 | |
Ýsa |
616,1 | 969,5 | 57,4 | |
Ufsi |
132,8 | 220,9 | 66,3 | |
Karfi |
235,6 | 558,0 | 136,8 | |
Úthafskarfi |
0,0 | 0,0 | 0,0 | |
Annar botnfiskur |
216,6 | 369,7 | 70,7 | |
Flatfiskur | 328,8 | 245,4 | -25,4 | |
Uppsjávarafli |
216,7 | 865,5 | 299,4 | |
Síld |
5,4 | 79,9 | 1.389,8 | |
Loðna |
211,3 | 773,4 | 266,0 | |
Kolmunni |
0,0 | 12,2 | 0,0 | |
Annar uppsjávarafli |
0,0 | 0,0 | 0,0 | |
Skel- og krabbadýraafli | 2,0 | 0,0 | -99,9 | |
Rækja |
0,0 | 0,0 | 0,0 | |
Annar skel- og krabbad.afli |
2,0 | 0,0 | -99,9 | |
Annar afli |
0,9 | 0,5 | -51,7 |
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar 2007 | ||||
Milljónir kr. | Breytingar frá | |||
Janúar | fyrra ári í % | |||
2006 | 2007 | Jan.– janúar | ||
Verðmæti alls | 3.569,5 | 5.669,1 | 58,8 | |
Til vinnslu innanlands |
1.462,8 | 2.310,2 | 57,9 | |
Í gáma til útflutnings | 322,6 | 692,9 | 114,8 | |
Landað erlendis í bræðslu | 0,0 | 0,0 | 0,0 | |
Sjófryst | 777,5 | 1.241,5 | 59,7 | |
Á markað til vinnslu innanlands | 846,4 | 1.255,1 | 48,3 | |
Á markað, í gáma til útflutnings | 121,0 | 97,2 | -19,7 | |
Sjófryst til endurvinnslu innanl. | 0,0 | 0,0 | - | |
Selt úr skipi erlendis | 25,6 | 58,1 | 127,2 | |
Fiskeldi | 3,3 | 0,0 | -100,0 | |
Aðrar löndunartegundir | 10,3 | 14,1 | 37,2 |
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar 2007 | ||||||
Milljónir kr. | Breytingar frá | |||||
Janúar | fyrra ári í % | |||||
2006 | 2007 | Jan.–janúar | ||||
Verðmæti alls | 3.569,5 | 5.669,1 | 58,8 | |||
Höfuðborgarsvæði |
657,1 | 914,8 | 39,2 | |||
Suðurnes |
742,7 | 1.318,5 | 77,5 | |||
Vesturland |
249,0 | 319,6 | 28,4 | |||
Vestfirðir |
366,6 | 426,3 | 16,3 | |||
Norðurland vestra |
213,0 | 308,9 | 45,0 | |||
Norðurland eystra |
406,5 | 630,4 | 55,1 | |||
Austurland |
220,4 | 631,9 | 186,7 | |||
Suðurland |
380,8 | 387,5 | 1,8 | |||
Útlönd |
333,3 | 731,2 | 119,4 | |||
¹ Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2007 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2006. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri. |
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.isDeila
Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.