FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 23. NÓVEMBER 2005


Verðmæti óunnins afla til útflutnings jókst um 20% milli ára
Á tímabilinu janúar til ágúst 2005 var aflaverðmæti íslenskra skipa af öllum miðum 46,4 milljarðar króna sem er nánast það sama og á fyrstu átta mánuðum ársins 2004. Aflaverðmæti jókst um tæpar 80 milljónir, á verðlagi hvors árs fyrir sig (0,2%). Verðmæti botnfiskaflans nam 31,6 milljörðum króna og jókst um 400 milljónir frá því í fyrra (1,3%). Verðmæti þorskaflans var 16,6 milljarðar króna og dróst saman um 2,1 milljarð króna (-11,4%). Aflaverðmæti ýsu var 5,8 milljarðar króna og jókst um 1,4 milljarða (31%). Verðmæti karfa var 3,9 milljarðar sem er 1,3 milljörðum meira en í fyrra (52%) en úthafskarfi skilaði 1,6 milljarði króna í aflaverðmæti sem er tæpum 900 milljónum minna en 2004  (-35%). Verðmæti flatfiskaflans nam 3,8 milljörðum króna og hefur dregist saman um tæpar 900 milljónir (-19%). Aflaverðmæti síldar jókst um 1,3 milljarða króna, var 3,2 milljarðar á fyrstu átta mánuðum ársins (71%) en verðmæti kolmunnaaflans dróst saman um rúmar 600 milljónir króna, nam 1,4 milljörðum á sama tímabili (-32%). Verðmæti skel- og krabbadýraafla nam 1,2 milljörðum króna og dróst saman um rúmar 900 milljónir (-43%). Verðmæti rækjuaflans nam ríflega 600 milljónum króna sem var rúmum milljarði minna en 2004 (-62%).

Verðmæti afla í beinni sölu útgerða nam 19,2 milljörðum króna og dróst saman um tæpa 2 milljarða milli ára (-9,4%). Verðmæti afla sem seldur er á fiskmörkuðum til vinnslu innanlands var 6,4 milljarðar króna og dróst saman um tæpar 300 milljónir (-4%). Verðmæti óunnins afla sem fluttur var út í gámum var 4,6 milljarðar og jókst um tæpar 800 milljónir (20%). Einnig jókst verðmæti sjófrysts afla, nam 15,2 milljörðum króna sem er 1,9 milljörðum meira en 2004 (15%).

Á Suðurnesjum var unnið úr afla að verðmæti 8,1 milljarður króna sem er svipað aflaverðmæti og í fyrra (1,2%). Á höfuðborgarsvæðinu var unnið úr afla að verðmæti 8 milljarðar króna sem er aukning um 1,3 milljarða (19%). Einnig jukust aflaverðmæti unnin á Suðurlandi eða sem nam tæpum 800 milljónum sem er 18% aukning frá fyrra ári. Mestur samdráttur milli ára varð á Vesturlandi, þar sem verðmæti unnins afla dróst saman um tæpa 1,7 milljarða króna eða 48%.

Upplýsingar um afla og aflaverðmæti¹ janúar-ágúst 2005 er að finna í talnaefni.

Verðmæti afla janúar–ágúst 2005
Milljónir kr.   Breytingar frá
    Ágúst Janúar–ágúst fyrra ári í %
    2004 2005 2004 2005 Jan.–ágúst
             
Verðmæti alls 4.623,7 4.418,7 46.373,0 46.451,5 0,2
             
Botnfiskur 3.246,2 3.177,2 31.206,5 31.611,1 1,3
 

Þorskur

1562,7 1328,9 18691,2 16556,7 -11,4
 

Ýsa

478,4 622,9 4400,3 5783,3 31,4
 

Ufsi

295,9 270,7 1420,8 1720,1 21,1
 

Karfi

201,6 443,1 2576,4 3907,2 51,7
 

Úthafskarfi

560,5 303,1 2501,7 1636,2 -34,6
 

Annar botnfiskur

147,1 208,5 1.616,1 2.007,6 24,2
Flatfiskur 512,6 309,6 4.664,0 3.780,4 -18,9
Uppsjávarafli 587,0 817,9 8.366,7 9.851,7 17,7
 

Síld

504,8 788,2 1.901,8 3.241,8 70,5
 

Loðna

0,0 0,0 3.902,9 4.746,8 21,6
 

Kolmunni

82,2 23,8 2.055,2 1.406,5 -31,6
 

Annar uppsjávarafli

0,0 5,9 506,7 456,7 -9,9
Skel- og krabbadýraafli 277,9 113,2 2.125,9 1.204,0 -43,4
 

Rækja

249,0 106,4 1.682,4 645,5 -61,6
 

Annar skel- og krabbad.afli

28,9 6,8 443,5 558,5 25,9
Annar afli 0,0 0,8 9,9 4,2 -57,8

 

Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar–ágúst 2005
Milljónir kr.   Breytingar frá
    Ágúst Janúar–ágúst fyrra ári í %
    2004 2005 2004 2005 Jan.–ágúst
             
Verðmæti alls 4.623,7 4.418,7 46.373,0 46.451,5 0,2
             
Til vinnslu innanlands 1.459,6 1.242,4 21.241,0 19.245,8 -9,4
Í gáma til útflutnings 371,2 507,0 3.803,9 4.560,8 19,9
Landað erlendis í bræðslu 0,0 15,0 89,6 62,2 -30,6
Sjófryst 2.068,2 1.961,3 13.246,8 15.177,9 14,6
Á markað til vinnslu innanlands 574,2 565,2 6.620,7 6.356,0 -4,0
Á markað, í gáma til útflutnings 81,7 67,4 650,9 678,7 4,3
Sjófryst til endurvinnslu innanl. 50,0 41,0 257,6 155,5 -39,6
Selt úr skipi erlendis 0,0 0,0 286,8 54,6 -81,0
Fiskeldi 7,8 4,8 31,1 9,5 -69,5
Aðrar löndunartegundir 10,9 14,6 144,6 150,3 4,0

 

Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar–ágúst 2005
Milljónir kr.   Breytingar frá
    Ágúst Janúar–ágúst fyrra ári í %
    2004 2005 2004 2005 Jan.–ágúst
             
Verðmæti alls 4.623,7 4.418,7 46.373,0 46.451,5 0,2
             
Höfuðborgarsvæði 895,8 984,9 6.783,8 8.047,2 18,6
Suðurnes 698,8 793,0 8.013,5 8.113,2 1,2
Vesturland 265,7 127,6 3.473,0 1.815,0 -47,7
Vestfirðir 337,7 206,9 2.987,8 2.471,2 -17,3
Norðurland vestra 431,0 365,1 3.523,5 3.306,7 -6,2
Norðurland eystra 971,9 812,1 7.289,0 7.771,5 6,6
Austurland 332,3 244,9 5.841,9 5.245,9 -10,2
Suðurland 329,4 394,5 4.341,1 5.137,7 18,3
Útlönd 361,2 489,6 4.119,4 4.543,2 10,3


¹Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2005 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2004. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.