FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 17. NÓVEMBER 2008


Aflaverðmæti 63 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 63 milljörðum króna á fyrstu átta mánuðum ársins 2008 samanborið við 58,5 milljarða á sama tímabili árið 2007. Aflaverðmæti hefur aukist um um 4,6 milljarða eða 7,9% á milli ára. Aflaverðmæti í ágúst nam 8,9 milljörðum miðað við 6,2 milljarða í ágúst 2007.

Aflaverðmæti botnfisks janúar til ágúst 2008 nam 44,4 milljörðum og jókst um 2,6% miðað við sama tímabili árið 2007. Verðmæti þorskafla var 21,2 milljarðar og dróst saman um 1,5% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 10,2 milljörðum, jókst um 8,2% og verðmæti karfaaflans nam 4,5 milljörðum sem er 4,5% samdráttur miðað við fyrstu átta mánuði ársins 2007. Aflaverðmæti ufsa nam rúmum 4 milljörðum og jókst um rúm 40% miðað við sama tímabil árið 2007.

Verðmæti flatfiskafla janúar til ágúst nam 4,1 milljarði og jókst um 22,2% frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla nam 13,6 milljörðum sem er 23,6% aukning miðað við fyrstu átta mánuði ársins 2007. Munar þar mestu um verðmæti makríls sem nam 4,4 milljörðum samanborið við 1,6 í fyrra og síld að verðmæti 4,7 milljarðar samanborið við 2,2 milljarða janúar til ágúst 2007.
 
Verðmæti afla, sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 25,4 milljörðum króna sem er aukning um 1,3% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 7,3%, nam 8,7 milljarði fyrstu átta mánuði ársins. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 19,7 milljörðum, jókst um 16% og verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 7,5 milljörðum sem er 28,5% aukning frá sama tímabili árið 2007.

Verðmæti afla janúar-ágúst 2008    
Milljónir króna Ágúst Janúar–ágúst Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 6.223,1 8.891,0 58.451,3 63.049,4 7,9
             
Botnfiskur 4.980,2 5.047,0 43.260,0 44.369,9 2,6
  Þorskur 1.854,4 1.832,2 21.563,6 21.231,8 -1,5
  Ýsa 1.856,2 1.310,0 9.454,9 10.230,9 8,2
  Ufsi 415,7 778,6 2.864,4 4.025,7 40,5
  Karfi 403,4 563,4 4.656,2 4.447,3 -4,5
  Úthafskarfi 3,0 0,0 1.724,0 921,3 -46,6
  Annar botnfiskur 447,5 562,8 2.996,9

3.513,0

17,2
Flatfiskur 383,0 425,7 3.320,8 4.058,6 22,2
Uppsjávarafli 806,4 3.365,5 11.025,5 13.627,7 23,6
  Síld 559,0 2.011,1 2.240,7 4.716,0 110,5
  Loðna 0,0 0,0 4.247,2 1.845,5 -56,5
  Kolmunni 51,0 19,1 2.986,0 2.700,4 -9,6
  Annar uppsjávarafli 196,3 1.335,4 1.551,6 4.365,8 181,4
Skel- og krabbadýraafli 53,5 45,6 843,6 968,1 14,8
  Rækja 36,3 23,1 203,5 245,5 20,7
  Annar skel- og krabbad.afli 17,2 22,5 640,2 722,6 12,9
Annar afli

0,0

7,2 1,5 25,0 1.567,8
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-ágúst 2008  
Milljónir króna Ágúst Janúar–ágúst Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 6.223,1 8.891,0 58.451,3 63.049,4 7,9
             
  Til vinnslu innanlands 1.674,1 3.379,0 25.024,0 25.353,3 1,3
  Í gáma til útflutnings 734,0 876,2 5.814,3 7.471,3 28,5
  Landað erlendis í bræðslu 0,0 71,4 4,6 225,5 4.762,4
  Sjófryst 2.860,3 3.697,9 16.950,7 19.666,6 16,0
  Á markað til vinnslu innanlands 768,4 641,7 9.399,8 8.710,0 -7,3
  Á markað, í gáma til útflutnings 121,9 161,6 799,5 863,6 8,0
  Sjófryst til endurvinnslu innanl. 32,2 1,6 60,1 174,9 191,1
  Selt úr skipi erlendis 0,0 0,0 108,3 33,4 -69,1
  Fiskeldi 16,5 6,4 38,0 53,4 40,5
  Aðrar löndunartegundir 15,7 55,4 252,0 497,4 97,4
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar-ágúst 2008
Milljónir króna Ágúst Janúar–ágúst Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 6.223,1 8.891,0 58.451,3 63.049,4 7,9
             
  Höfuðborgarsvæði 1.248,7 1.431,6 10.280,8 10.097,5 -1,8
  Suðurnes 1.044,3 1.195,0 10.799,3 11.250,8 4,2
  Vesturland 179,8 54,3 3.135,0 2.953,0 -5,8
  Vestfirðir 229,6 320,6 2.925,9 2.761,3 -5,6
  Norðurland vestra 616,3 767,1 3.566,5 3.697,5 3,7
  Norðurland eystra 1.170,0 1.139,2 8.335,1 8.620,6 3,4
  Austurland 772,4 2.307,8 8.138,9 10.039,3 23,3
  Suðurland 258,1 760,2 5.539,0 6.106,4 10,2
  Útlönd 703,8 915,3 5.730,7 7.522,9 31,3

Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2008 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2007 Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.