FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 17. NÓVEMBER 2009


Aflaverðmæti 75 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 75 milljörðum króna á fyrstu átta mánuðum ársins 2009, samanborið við rúma 63 milljarða yfir sama tímabil 2008. Aflaverðmæti hefur því aukist um 12 milljarða eða 19% á milli ára. Aflaverðmæti í ágústmánuði nam 10 milljörðum króna miðað við 9 milljarða í ágúst 2008.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok ágúst orðið 52 milljarðar króna á árinu sem er aukning um 16,5% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam tæpum 45 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 23 milljarðar og jókst um 9,5% frá árinu 2008. Aflaverðmæti ýsu nam um 10 milljörðum og stóð nokkurn veginn í stað milli ára. Verðmæti karfaaflans nam 6 milljörðum, sem er 34,7% aukning frá fyrstu átta mánuðum ársins 2008, og verðmæti ufsaaflans jókst um 5,1% milli ára í 4,2 milljarða króna. Verðmæti annars botnfisksafla jókst í heild um 31,9% miðað við fyrstu átta mánuði ársins 2008.

Verðmæti flatfiskafla nam rúmum 7 milljörðum króna í janúar til ágúst 2009 sem er 74,5% aukning frá fyrra ári. Verðmæti uppsjávarafla jókst um 11% milli ára og nam rúmum 15 milljörðum króna frá janúar til ágúst 2009. Munar þar mestu um verðmæti síldarafla sem nam 7,2 milljörðum samanborið við 4,7 milljarða í fyrra og makríl að verðmæti 4,2 milljarðar samanborið við 3 milljarða 2008.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam um 29 milljörðum króna fyrstu átta mánuði ársins og jókst um 14% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 9,9% milli ára og nam 9,5 milljörðum króna. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 26 milljörðum, samanborið við tæpa 20 milljarða árið áður. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam um 8,8 milljörðum, sem er 17,2% aukning miðað við tímabilið janúar til ágúst 2008.

Verðmæti afla janúar-ágúst 2009    
Milljónir króna Ágúst Janúar–ágúst Breyting frá
    2008 2009 2008 2009 fyrra ári í %
Verðmæti alls 9.140 10.040 63.344 75.348 19,0
Botnfiskur 5.286 5.909 44.616 51.983 16,5
Þorskur 1.931 2.479 21.343 23.371 9,5
Ýsa 1.424 1.238 10.347 10.298 -0,5
Ufsi 786 844 4.032 4.238 5,1
Karfi 570 524 4.454 6.000 34,7
Úthafskarfi 0 219 921 3.434 -
Annar botnfiskur 575 604 3.518 4.641 31,9
Flatfisksafli 435 772 4.070 7.101 74,5
Uppsjávarafli 3.366 3.180 13.665 15.162 11,0
Síld 2.011 2.400 4.734 7.208 52,2
Loðna 0 0 1.846 341 -81,5
Kolmunni 19 23 2.700 2.596 -3,8
Annar uppsjávarafli 1.335 757 4.384 5.017 14,4
Skel- og krabbadýraafli 46 179 968 1.091 12,7
Rækja 23 84 245 431 75,4
Annar skel- og krabbad.afli 22 95 723 661 -8,6
Annar afli 7 0 25 11 -55,3

Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-ágúst 2009  
Milljónir króna Ágúst Janúar–ágúst Breyting frá
    2008 2009 2008 2009 fyrra ári í %
Verðmæti alls 9.140 10.040 63.344 75.348 19,0
Til vinnslu innanlands 3.345 3.234 25.330 28.885 14,0
Í gáma til útflutnings 901 985 7.515 8.807 17,2
Landað erlendis í bræðslu 71 129 225 327 45,2
Sjófryst 3.940 4.565 19.905 26.008 30,7
Á markað til vinnslu innanlands 642 949 8.677 9.538 9,9
Á markað, í gáma til útflutnings 162 115 895 832 -7,1
Sjófryst til endurvinnslu innanl. 9 17 186 36 -80,7
Selt úr skipi erlendis 0 0 41 263 538,6
Fiskeldi 15 0 73 52 -28,4
  Aðrar löndunartegundir 55 46 497 600 20,7

Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2009 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2008 Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.