FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 30. NÓVEMBER 2010


Aflaverðmæti 91 milljarður króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 91 milljarði króna á fyrstu átta mánuðum ársins 2010 samanborið við tæpa 77 milljarða á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um 14 milljarða eða 18,2% á milli ára.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok ágúst orðið 64 milljarðar og jókst um 21,5% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam 53 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 30 milljarðar og jókst um 28,1% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 11 milljörðum og jókst um 5,3%. Verðmæti karfaaflans nam 7,6 milljörðum, sem er 24,7% aukning frá árinu 2009. Verðmæti ufsaaflans jókst um 31,6% milli ára og nam 5,6 milljörðum á fyrstu átta mánuðum ársins 2010.

Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 7 milljörðum króna í janúar til ágúst 2010, sem er 3,1% samdráttur frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 15,1% milli ára og nam 17,7 milljörðum.
 
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 36 milljörðum króna og jókst um 23% frá árinu 2009. Aflaverðmæti sjófrystingar voru tæpir 33,3 milljarðar, sem er 26,7% aukning milli ára. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 39,6% milli ára og var um 13,4 milljarðar.

Verðmæti afla janúar-ágúst 2010
Milljónir króna Ágúst Janúar–ágúst Breyting frá
    2009 2010 2009 2010 fyrra ári í %
Verðmæti alls 10.076,0 12.664,3 76.669,2 90.616,2 18,2
Botnfiskur 5.976,2 7.497,1 52.708,6 64.021,1 21,5
Þorskur 2.525,3 3.105,0 23.516,8 30.128,5 28,1
Ýsa 1.247,0 1.618,8 10.519,0 11.072,5 5,3
Karfi 528,5 816,9 6.108,0 7.619,6 24,7
Ufsi 843,7 1.282,9 4.255,9 5.601,1 31,6
Annar botnfiskur 831,7 673,5 8.308,8 9.599,4 15,5
Flatfisksafli 773,5 643,5 7.207,5 6.982,4 -3,1
Uppsjávarafli 3.116,0 4.216,4 15.349,9 17.662,5 15,1
Síld 2.350,9 1.720,3 7.125,4 4.200,4 -41,1
Loðna 0,0 0,0 412,3 1.352,0 227,9
Kolmunni 23,1 123,4 2.661,1 3.258,1 22,4
Annar uppsjávarafli 742,1 2.372,7 5.151,0 8.852,0 71,8
Skel- og krabbadýraafli 206,2 307,0 1.373,6 1.901,1 38,4
Rækja 111,2 174,9 699,4 1.172,9 67,7
Annar skel- og krabbad.afli 94,9 132,2 674,2 728,2 8,0
Annar afli 4,2 0,3 29,6 49,2 66,1

Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-ágúst 2010
Milljónir króna Ágúst Janúar–ágúst Breyting frá
    2009 2010 2009 2010 fyrra ári í %
Verðmæti alls 10.076,0 12.664,3 76.669,2 90.616,2 18,2
Til vinnslu innanlands 3.234,9 4.558,6 29.319,1 36.061,4 23,0
Í gáma til útflutnings 990,2 673,9 9.291,5 6.695,8 -27,9
Landað erlendis í bræðslu 128,5 0,0 392,0 83,6 -78,7
Sjófryst 4.564,6 5.925,0 26.257,2 33.257,0 26,7
Á markað til vinnslu innanlands 972,1 1.238,8 9.567,5 13.359,0 39,6
Á markað, í gáma til útflutnings* 115,3 122,8 834,4
Sjófryst til endurvinnslu innanl. 16,8 60,4 37,3 184,4 394,7
Selt úr skipi erlendis 0,0 0,0 263,3 0,0
Fiskeldi 7,2 9,2 98,6 75,8 -23,2
  Aðrar löndunartegundir 46,4 75,6 608,3 899,2 47,8
*Fyrir árið 2010 er ekki hægt að birta sundurliðaðar tölur um afla  sem seldur er í gegnum uppboðsmarkað innanlands og fer síðan í gám til útflutnings (og er unninn í útlöndum).

Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar-ágúst 2010
Milljónir króna Ágúst Janúar–ágúst Breyting frá
    2009 2010 2009 2010 fyrra ári í %
Verðmæti alls 10.076,0 12.664,3 76.669,2 90.616,2 18,2
Höfuðborgarsvæði 1.783,7 2.210,0 13.396,5 17.004,2 26,9
Suðurnes 1.523,9 2.007,7 12.631,4 15.577,5 23,3
Vesturland 141,0 182,6 3.279,7 3.808,5 16,1
Vestfirðir 398,3 623,2 3.786,1 4.845,3 28,0
Norðurland vestra 934,9 1.077,1 5.147,7 6.705,9 30,3
Norðurland eystra 1.632,8 2.469,7 11.243,6 14.075,1 25,2
Austurland 1.590,2 2.010,5 10.632,6 12.068,7 13,5
Suðurland 1.016,3 1.468,6 6.984,3 10.049,8 43,9
  Útlönd 1.055,0 615,0 9.567,1 6.481,4 -32,3

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.