FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 22. JÚLÍ 2005


Aflaverðmætið 25,9 milljarðar króna
Á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2005 var aflaverðmæti íslenskra skipa af öllum miðum 25,9 milljarðar króna samanborið við 24,9 milljarða á sama tímabili 2004. Aflaverðmæti hefur því aukist um 4,1% frá fyrra ári eða um 1 milljarð króna. Verðmæti botnfiskaflans var rúmir 18,6 milljarðar og jókst um ríflega 530 milljónir króna (2,9%). Verðmæti þorsks var tæpir 10,9 milljarðar og dróst saman um tæplega 1,2 milljarða króna (-9,7%). Verðmæti ýsuaflans nam 3,5 milljörðum króna og jókst um tæpar 770 milljónir (28%). Verðmæti karfa var 2,3 milljarðar króna og er það aukning um tæpar 610 milljónir frá fyrra ári (36%). Lítið var veitt af loðnu í aprílmánuði enda vertíð í raun lokið. Verðmætið á loðnuvertíðinni nam rúmum 4,7 milljörðum króna sem er rúmlega 1,1 milljarði meira miðað við sama tímabil í fyrra (32%). Aflaverðmæti kolmunna jókst á milli ára um rúmar 100 milljónir króna og nam tæpum 350 á tímabilinu janúar til apríl 2005 (43%). Þá var verðmæti skel- og krabbadýraafla tæpar 240 milljónir en var rúmlega 670 milljónir á sama tímabili 2004.

Verðmæti afla í beinni sölu útgerða til vinnslustöðva var tæpir 12,3 milljarðar króna en það er nánast sama verðmæti og fékkst í slíkum viðskiptum á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2004 (-0,3%). Verðmæti sjófrysts afla var tæpir 7 milljarðar króna en nam ríflega 5,9 milljörðum 2004 og hefur því aukist um tæp 18% á milli ára. Töluverð aukning var einnig í útflutningi á ferskum fiski í gámum, en flutt var út fyrir tæpa 2,4 milljarða sem er 18% aukning frá fyrra ári. Dregið hefur hins vegar úr verðmæti þess afla sem seldur er á markaði til vinnslu innanlands, var 3,9 milljarðar 2004 en 3,7 milljarðar króna 2005 (-5%).

Á Suðurnesjum var unnið úr afla að verðmæti 5 milljarðar króna sem er samdráttur um 105 milljónir eða 2% frá fyrra ári. Á höfuðborgarsvæðinu námu verðmætin 4,2 milljörðum króna sem er 613 milljóna króna aukning frá árinu 2004 (17%). Á Suðurlandi varð mesta aukningin milli ára, 611 milljónir eða 26%. Mesti samdráttur var hins vegar á Vesturlandi, 680 milljónir króna eða sem nemur 37%.

Verðmæti afla janúar–apríl 2005
Milljónir kr.   Breytingar frá fyrra ári í % Jan.-apríl
    Apríl Janúar–apríl
    2004 2005 2004 2005
             
Verðmæti alls 5.228,2 5.539,8 24.882,1 25.890,1 4,1
             
Botnfiskur 4.406,8 4.624,0 18.105,5 18.637,1 2,9
  Þorskur 2627,0 2.328,5 12.053,1 10.879,9 -9,7
  Ýsa 754,9 985,2 2.722,4 3.490,2 28,2
  Ufsi 217,5 251,4 715,8 858,8 20,0
  Karfi 562,6 753,6 1.690,9 2.299,7 36,0
  Úthafskarfi 4,9 0,0 4,9 0,0 0,0
  Annar botnfiskur 239,8 305,3 918,4 1.108,4 20,7
Flatfiskur 350,1 415,8 1.583,8 1.408,4 -11,1
Uppsjávarafli 217,5 333,1 4.509,7 5.604,6 24,3
  Síld 0,0 0,0 150,4 68,9 -54,2
  Loðna 0,0 5,2 3.608,0 4.746,3 31,5
  Kolmunni 217,5 327,9 244,5 348,9 42,7
  Annar uppsjávarafli 0,0 0,0 506,7 440,5 -13,1
Skel- og krabbadýraafli 253,1 166,7 673,2 238,3 -64,6
  Rækja 202,4 77,8 608,2 145,3 -76,1
  Annar skel- og krabbad.afli 50,7 88,9 65,0 93,1 43,2
Annar afli 0,7 0,1 9,8 1,7 -82,2
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar–apríl 2005
Milljónir kr.   Breytingar frá fyrra ári í % Jan.-apríl
    Apríl Janúar–apríl
    2004 2005 2004 2005
             
Verðmæti alls 5.228,2 5.539,8 24.882,1 25.890,1 4,1
             
Til vinnslu innanlands 2.313,0 2.393,4 12.316,7 12.278,9 -0,3
Í gáma til útflutnings 570,0 566,4 1.998,8 2.358,9 18,0
Landað erlendis í bræðslu 10,1 17,7 20,9 17,7 0,0
Sjófryst 1.265,8 1.631,9 5.918,3 6.971,5 17,8
Á markað til vinnslu innanlands 878,3 816,5 3.911,5 3.716,7 -5,0
Á markað, í gáma til útflutnings 76,2 56,4 313,7 343,7 9,5
Sjófryst til endurvinnslu innanl. 36,9 28,2 109,1 44,4 -59,3
Selt úr skipi erlendis 51,6 0,0 198,0 54,6 -72,4
Fiskeldi 3,0 1,5 6,3 3,9 -38,2
Aðrar löndunartegundir 23,4 27,9 88,8 99,8 12,4
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar–apríl 2005
Milljónir kr.   Breytingar frá fyrra ári í % Jan.-apríl
    Apríl Janúar–apríl
    2004 2005 2004 2005
             
Verðmæti alls 5.228,2 5.539,8 24.882,1 25.890,1 4,1
             
Höfuðborgarsvæði 935,3 1.148,1 3.568,6 4.181,5 17,2
Suðurnes 994,9 1.076,9 5.127,1 5.022,4 -2,0
Vesturland 327,0 214,1 1.845,9 1.165,4 -36,9
Vestfirðir 360,7 324,8 1.431,4 1.267,8 -11,4
Norðurland vestra 330,0 455,6 1.745,1 1.820,5 4,3
Norðurland eystra 663,1 604,4 3.477,9 3.758,5 8,1
Austurland 505,2 554,2 3.149,2 3.322,8 5,5
Suðurland 486,4 584,1 2.336,2 2.947,4 26,2
Útlönd 625,6 577,7 2.200,7 2.403,6 9,2

Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2005 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2004. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.