FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 17. JÚLÍ 2008


Aflaverðmæti 30,6 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 30,6 milljörðum króna á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2008 samanborið við 32,7 milljarða á sama tímabili 2007. Aflaverðmæti hefur dregist saman um 2,1 milljarð eða 6,5% milli ára. Aflaverðmæti aprílmánaðar nam 8,4 milljörðum miðað við 7,6 milljarða í apríl 2007.

Aflaverðmæti botnfisks janúar til apríl 2008 var 24,2 milljarðar sem er sambærilegt við sama tímabil árið 2007. Verðmæti þorskafla var 13,0 milljarðar og dróst saman um 4,8% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 5,7 milljörðum, jókst um 16% og verðmæti ufsaaflans nam 1,4 milljarði sem er 14,5% samdráttur miðað við fyrstu fjóra mánuði ársins 2007.

Verðmæti flatfiskafla janúar til apríl nam 1,3 milljarði og dróst saman um 6,2% frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla nam 5 milljörðum sem er samdráttur upp á 27,6% miðað við sama tímabil árið 2007.
 
Verðmæti afla, sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 13,1 milljarði króna sem er samdráttur um 2,1 milljarða eða 13,8% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 7,4%, nam 5,3 milljörðum fyrstu fjóra mánuði ársins. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 8,1 milljarði, dróst saman um 4,1% og verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 3,5 milljörðum og jókst um 25,8% frá sama tímabili árið 2007.

Verðmæti afla janúar-apríl 2008    
Milljónir króna Apríl Janúar–apríl Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 7.578,4 8.358,4 32.739,2 30.627,5 -6,5
             
Botnfiskur 6.136,3 6.604,1 24.334,3 24.166,2 -0,7
  Þorskur 2.885,1 3.294,9 13.627,4 12.966,7 -4,8
  Ýsa 1.328,0 1.581,1 4.911,7 5.697,5 16,0
  Ufsi 506,2 434,8 1.427,1 1.633,8 14,5
  Karfi 1.058,0 821,4 2.861,7 2.358,0 -17,6
  Úthafskarfi 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0
  Annar botnfiskur 359,0 471,9 1.506,4 1.510,2 0,3
Flatfiskur 367,5 419,4 1.399,3 1.312,7 -6,2
Uppsjávarafli 967,0 1.199,4 6.879,4 4.977,4 -27,6
  Síld 0,0 0,0 79,9 385,9 382,8
  Loðna 0,0 0,0 4.247,2 1.732,9 -59,2
  Kolmunni 967,0 1.199,4 1.493,9 1.827,5 0,0
  Annar uppsjávarafli 0,0 0,0 1.058,4 1.031,1 0,0
Skel- og krabbadýraafli 107,4 132,8 124,8 166,6 33,5
  Rækja 16,9 34,4 28,9 49,7 0,0
  Annar skel- og krabbad.afli 90,5 98,4 95,9 116,9 21,9
Annar afli 0,2 2,8 1,5 4,6 218,4
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-apríl 2008  
Milljónir króna Apríl Janúar–apríl Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 7.578,4 8.358,4 32.739,2 30.627,5 -6,5
             
  Til vinnslu innanlands 3.224,2 3.518,2 15.155,9 13.057,4 -13,8
  Í gáma til útflutnings 722,4 919,6 2.798,2 3.520,4 25,8
  Landað erlendis í bræðslu 4,6 36,6 4,6 104,3 0,0
  Sjófryst 2.353,7 2.280,7 8.448,3 8.103,8 -4,1
  Á markað til vinnslu innanlands 1.157,5 1.423,7 5.670,6 5.248,7 -7,4
  Á markað, í gáma til útflutnings 69,1 93,0 403,8 338,7 -16,1
  Sjófryst til endurvinnslu innanl. 3,9 0,1 18,1 0,3 -
  Selt úr skipi erlendis 0,0 0,0 92,8 33,4 -64,0
  Fiskeldi 5,6 0,0 8,8 0,2 -98,0
  Aðrar löndunartegundir 37,4 86,6 138,1 220,3 59,5
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar-apríl 2008
Milljónir króna Apríl Janúar–apríl Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 7.578,4 8.358,4 32.739,2 30.627,5 -6,5
             
  Höfuðborgarsvæði 1.299,4 1.326,5 5.481,8 4.945,0 -9,8
  Suðurnes 1.415,3 1.646,1 6.565,6 6.394,3 -2,6
  Vesturland 373,6 447,0 2.292,6 2.257,8 -1,5
  Vestfirðir 492,7 413,9 1.724,0 1.427,8 -17,2
  Norðurland vestra 458,7 579,7 1.908,8 1.640,1 -14,1
  Norðurland eystra 1.073,6 984,1 4.100,9 3.676,1 -10,4
  Austurland 1.070,0 1.205,8 4.409,3 3.826,6 -13,2
  Suðurland 681,3 809,8 3.434,7 2.858,9 -16,8
  Útlönd 713,9 945,5 2.821,4 3.600,9 27,6

Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2008 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2007 Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.