Aflaverðmæti 80 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 80 milljörðum króna á árinu 2007 samanborið við 76,2 milljarða á árinu 2006. Aflaverðmæti hefur aukist um 3,9 milljarða eða 5,1% milli ára. Aflaverðmæti í desember nam rúmum 5 milljörðum en var 5,6 milljarðar í desember 2006.
Aflaverðmæti botnfisks var 60,3 milljarðar árið 2007 og hefur því aukist um 4,8% frá fyrra ári þegar aflaverðmætið nam 57,5 milljörðum. Verðmæti þorskafla var 29,5 milljarðar og jókst um 6,8%. Aflaverðmæti ýsu nam 14,5 milljörðum, sem er 27% aukning frá 2006. Aflaverðmæti karfa dróst saman um 11,3% og var 5,8 milljarðar í árslok. Verðmæti ufsaaflinn var 4,2 milljarðar árið 2007 og dróst saman um 9,5% frá fyrra ári.
Verðmæti flatfiskafla nam 4,3 milljörðum árið 2007 og dróst saman um 17,1% frá árinu 2006. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 15,5% milli ára og nam 14,5 milljörðum. Munar þar mestu um 94,8% aukningu á verðmæti loðnu sem nam 4,2 milljarðar í árslok 2007. Aflaverðmæti síldar nam 5,7 milljörðum á síðasta ári og dróst saman um 10,2% frá 2006. Verðmæti kolmunna dróst saman um 16,2% og nam 3 milljörðum árið 2007.
Verðmæti rækju var 226 millj. kr. samanborið við 287 millj. kr. í fyrra, sem er samdráttur um 21,3%
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu, var 32 milljörðum króna sem er aukning um 3,7 milljarða eða 13,1%. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 5,5%, var 12,7 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 24,9 milljarðar og dróst saman um 3,9% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 8,5 milljörðum sem er 6,8% aukning.
Verðmæti afla janúar–desember 2007 | ||||||
Milljónir kr. | Breytingar frá | |||||
Desember | Janúar–desember | fyrra ári í % | ||||
2006 | 2007 | 2006 | 2007 | Jan.– desember | ||
Verðmæti alls | 5.643,1 | 5.024,7 | 76.163,3 | 80.038,1 | 5,1 | |
Botnfiskur | 4.574,7 | 3.867,7 | 57.513,1 | 60.269,4 | 4,8 | |
Þorskur | 2.727,6 | 2.065,6 | 27.588,6 | 29.466,1 | 6,8 | |
Ýsa | 858,1 | 1.121,2 | 11.418,1 | 14.504,0 | 27,0 | |
Ufsi | 365,2 | 279,5 | 4.684,2 | 4.240,5 | -9,5 | |
Karfi | 306,6 | 181,0 | 6.537,4 | 5.798,3 | -11,3 | |
Úthafskarfi | 0,0 | 0,0 | 3.129,9 | 1.835,6 | -41,4 | |
Annar botnfiskur | 317,2 | 220,4 | 4.155,0 | 4.424,9 | 6,5 | |
Flatfiskur | 393,3 | 305,9 | 5.229,8 | 4.333,8 | -17,1 | |
Uppsjávarafli | 673,3 | 847,5 | 12.562,9 | 14.509,4 | 15,5 | |
Síld | 663,9 | 847,5 | 6.346,8 | 5.698,0 | -10,2 | |
Loðna | 0,5 | 0,0 | 2.180,5 | 4.247,2 | 94,8 | |
Kolmunni | 8,9 | 0,0 | 3.584,7 | 3.002,8 | -16,2 | |
Annar uppsjávarafli | 0,0 | 0,0 | 450,9 | 1.561,5 | 246,3 | |
Skel- og krabbadýraafli | 1,7 | 3,6 | 854,5 | 923,9 | 8,1 | |
Rækja | 0,0 | 0,0 | 286,7 | 225,6 | -21,3 | |
Annar skel- og krabbad.afli | 1,7 | 3,6 | 567,9 | 698,3 | 23,0 | |
Annar afli | 0,0 | 0,0 | 2,9 | 1,5 | -47,5 |
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar–desember 2007 | ||||||
Milljónir kr. | Breytingar frá | |||||
Desember | Janúar–desember | fyrra ári í % | ||||
2006 | 2007 | 2006 | 2007 | Jan.–desember | ||
Verðmæti alls | 5.643,1 | 5.024,7 | 76.163,3 | 80.038,1 | 5,1 | |
Til vinnslu innanlands | 1.770,7 | 1.338,1 | 28.345,1 | 32.056,8 | 13,1 | |
Í gáma til útflutnings | 472,1 | 484,3 | 7.937,9 | 8.480,6 | 6,8 | |
Landað erlendis í bræðslu | 2,2 | 0,0 | 169,3 | 111,1 | -34,4 | |
Sjófryst | 2.367,2 | 2.478,1 | 25.866,2 | 24.864,0 | -3,9 | |
Á markað til vinnslu innanlands | 928,3 | 647,4 | 12.010,4 | 12.672,5 | 5,5 | |
Á markað, í gáma til útflutnings | 70,5 | 45,5 | 1.457,6 | 1.218,5 | -16,4 | |
Sjófryst til endurvinnslu innanl. | 0,0 | 1,3 | 0,0 | 190,2 | - | |
Selt úr skipi erlendis | 24,3 | 16,7 | 121,4 | 125,0 | 2,9 | |
Fiskeldi | 0,9 | 1,3 | 43,2 | 4,7 | -89,1 | |
Aðrar löndunartegundir | 6,9 | 11,9 | 212,2 | 314,7 | 48,3 |
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar–desember 2007 | ||||||
Milljónir kr. | Breytingar frá | |||||
Desember | Janúar–desember | fyrra ári í % | ||||
2006 | 2007 | 2006 | 2007 | Jan.–desember | ||
Verðmæti alls | 5.643,1 | 5.024,7 | 76.163,3 | 80.038,1 | 5,1 | |
Höfuðborgarsvæði | 1.271,5 | 1.168,5 | 15.693,3 | 14.485,9 | -7,7 | |
Suðurnes | 1.144,1 | 894,4 | 13.253,4 | 14.530,6 | 9,6 | |
Vesturland | 208,2 | 177,5 | 2.959,4 | 4.002,4 | 35,2 | |
Vestfirðir | 354,9 | 228,0 | 4.272,4 | 4.123,5 | -3,5 | |
Norðurland vestra | 497,8 | 304,1 | 5.662,6 | 4.954,9 | -12,5 | |
Norðurland eystra | 652,8 | 855,3 | 9.504,3 | 11.612,4 | 22,2 | |
Austurland | 565,0 | 498,4 | 9.594,8 | 10.491,9 | 9,3 | |
Suðurland | 460,8 | 410,6 | 7.327,6 | 7.391,4 | 0,9 | |
Útlönd | 488,0 | 487,8 | 7.895,5 | 8.445,0 | 7,0 |
Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2007 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2006. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.
Talnaefni