Aflaverðmæti janúarmánaðar var 4,7 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 4,7 milljörðum króna í janúar 2008 samanborið við 5,8 milljarða í janúar 2007. Aflaverðmæti hefur dregist saman um 1,1 milljarð eða 18,3% milli ára.
Aflaverðmæti botnfisks var 3,7 milljarðar en var 4,6 milljarðar í janúar 2007 og er samdrátturinn því 18,7%. Verðmæti þorskafla var 1,9 milljarðar og var það samdráttur um 25,1%. Aflaverðmæti ýsu nam 1,1 milljarði, sem er 11,9% aukning, og ufsaaflinn jókst að verðmæti um 9,6%, í 247 milljónir.
Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 10,1%, nam 220 milljónum. Aflaverðmæti uppsjávarafla dróst saman um 18,2% og nam 796 milljónum. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam 321 milljón.
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu, var 1,8 milljarðar króna. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands nam 1,0 milljarði. Aflaverðmæti sjófrystingar var rúmur milljarður og verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 758 milljónum.
Verðmæti afla í janúar 2008 | ||||
Milljónir kr. | ||||
Janúar | Breyting frá | |||
2007 | 2008 | fyrra ári í % | ||
Verðmæti alls | 5.824,1 | 4.759,5 | -18,3 | |
Botnfiskur | 4.601,9 | 3.741,7 | -18,7 | |
Þorskur | 2.467,1 | 1.846,8 | -25,1 | |
Ýsa | 978,0 | 1.094,5 | 11,9 | |
Ufsi | 225,5 | 247,0 | 9,6 | |
Karfi | 560,6 | 268,1 | -52,2 | |
Úthafskarfi | 0,0 | 0,0 | 0,0 | |
Annar botnfiskur | 370,7 | 285,3 | -23,0 | |
Flatfiskur | 245,4 | 220,7 | -10,1 | |
Uppsjávarafli | 973,6 | 796,2 | -18,2 | |
Síld | 79,9 | 381,2 | 376,9 | |
Loðna | 881,5 | 320,5 | -63,6 | |
Kolmunni | 12,2 | 94,5 | 0,0 | |
Annar uppsjávarafli | 0,0 | 0,0 | 0,0 | |
Skel- og krabbadýraafli | 2,8 | 0,4 | -86,6 | |
Rækja | 0,0 | 0,0 | 0,0 | |
Annar skel- og krabbad.afli | 2,8 | 0,4 | -86,6 | |
Annar afli | 0,5 | 0,6 | 18,6 |
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar 2008 | ||||
Milljónir kr. | ||||
Janúar | Breyting frá | |||
2007 | 2008 | fyrra ári í % | ||
Verðmæti alls | 5.824,1 | 4.759,5 | -18,3 | |
Til vinnslu innanlands | 2.338,7 | 1.770,1 | -24,3 | |
Í gáma til útflutnings | 694,6 | 758,0 | 9,1 | |
Landað erlendis í bræðslu | 0,0 | 32,7 | 0,0 | |
Sjófryst | 1.359,5 | 1.046,9 | -23,0 | |
Á markað til vinnslu innanlands | 1.254,0 | 1.044,3 | -16,7 | |
Á markað, í gáma til útflutnings | 98,3 | 89,1 | -9,4 | |
Sjófryst til endurvinnslu innanl. | 5,4 | 0,2 | - | |
Selt úr skipi erlendis | 58,1 | 0,0 | -100,0 | |
Fiskeldi | 1,3 | 0,0 | -100,0 | |
Aðrar löndunartegundir | 14,2 | 18,1 | 28,1 |
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar 2008 | ||||||
Milljónir kr. | ||||||
Janúar | Breyting frá | |||||
2007 | 2008 | fyrra ári í % | ||||
Verðmæti alls | 5.824,1 | 4.759,5 | -18,3 | |||
Höfuðborgarsvæði | 1.017,5 | 741,9 | -27,1 | |||
Suðurnes | 1.192,7 | 936,4 | -21,5 | |||
Vesturland | 352,1 | 356,8 | 1,3 | |||
Vestfirðir | 439,7 | 234,6 | -46,6 | |||
Norðurland vestra | 308,9 | 161,8 | -47,6 | |||
Norðurland eystra | 672,0 | 680,2 | 1,2 | |||
Austurland | 715,1 | 579,5 | -19,0 | |||
Suðurland | 393,4 | 289,2 | -26,5 | |||
Útlönd | 732,8 | 779,1 | 6,3 |
Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2008 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2007. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.
Talnaefni