FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 16. MARS 2009


Aflaverðmæti 99 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 99 milljörðum króna á árinu 2008 samanborið við 80 milljarða yfir árið 2007. Aflaverðmæti hefur aukist um 18,8 milljarða eða 23,5% á milli ára. Aflaverðmæti í desember nam tæpum 8 milljörðum  miðað við rúma 5 milljarða í desember 2007.

Aflaverðmæti botnfisks var 70 milljarðar á árinu 2008 og jókst um 15,8% frá fyrra ári þegar aflaverðmætið nam rúmum 60 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 32 milljarðar og jókst um 8,8% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 14,1 milljarði og jókst um 3,9% en verðmæti karfaaflans nam 9,2 milljörðum, sem er rúm 58,6% aukning frá árinu 2007. Verðmæti ufsaaflans jókst einnig umtalsvert, það nam tæpum 6,5 milljörðum sem er 52,1% aukning frá fyrra ári.

Verðmæti flatfiskafla nam 6,6 milljörðum á árinu 2008 og jókst um 53,7% frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla nam rúmum 21 milljarði, sem er 46,4% aukning milli ára. Verðmæti síldaraflans yfir árið nam rúmum 12 milljörðum sem er 112,7% aukning frá árinu 2007. Verðmæti makríls jókst einnig mikið á milli ára, nam tæpum 4,6 milljörðum samanborið við 1,6 milljarða á árinu 2007.
 
Verðmæti afla, sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 36,8 milljörðum króna, sem er aukning um 14,8% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 2,6% milli ára og var tæpir 13 milljarðar yfir árið 2008. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 33,8 milljörðum og jókst um 35,1% og verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam rúmum 12 milljörðum, sem er 41,8% aukning frá árinu 2007.

Verðmæti afla janúar-desember 2008    
Milljónir króna Desember Janúar–desember Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 5.126,9 7.964,2 80.251,5 99.089,2 23,5
             
Botnfiskur 3.949,2 5.741,4 60.458,3 70.002,4 15,8
  Þorskur 2.120,0 2.675,1 29.585,0 32.193,6 8,8
  Ýsa 1.139,8 899,3 14.537,6 15.111,1 3,9
  Ufsi 286,3 781,7 4.262,8 6.482,2 52,1
  Karfi 182,0 898,4 5.810,0 9.215,8 58,6
  Úthafskarfi 0,0 0,0 1.835,6 921,3 -49,8
  Annar botnfiskur 221,0 486,9 4.427,3 6.078,5 37,3
Flatfiskur 306,2 908,5 4.334,5 6.660,2 53,7
Uppsjávarafli 867,9 1.307,9 14.529,9 21.264,6 46,4
  Síld 849,2 1.306,9 5.699,7 12.120,7 112,7
  Loðna 0,0 0,0 4.247,2 1.845,5 -56,5
  Kolmunni 18,7 0,0 3.021,5 2.718,3 -10,0
  Annar uppsjávarafli 0,0 1,0 1.561,5 4.580,1 193,3
Skel- og krabbadýraafli 3,6 4,3 927,3 1.112,0 19,9
  Rækja 0,0 2,7 229,0 303,2 32,4
  Annar skel- og krabbad.afli 3,6 1,6 698,3 808,9 15,8
Annar afli 0,0 2,1 1,5 50,0 3.152,7
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-desember 2008  
Milljónir króna Desember Janúar–desember Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 5.126,9 7.964,2 80.251,5 99.089,2 23,5
             
  Til vinnslu innanlands 1.352,7 2.902,5 32.043,0 36.786,5 14,8
  Í gáma til útflutnings 484,8 892,9 8.512,8 12.072,1 41,8
  Landað erlendis í bræðslu 0,0 0,0 111,1 704,9 534,5
  Sjófryst 2.564,0 3.086,5 25.012,5 33.786,1 35,1
  Á markað til vinnslu innanlands 647,4 918,4 12.672,5 12.997,8 2,6
  Á markað, í gáma til útflutnings 45,5 120,1 1.218,5 1.752,1 43,8
  Sjófryst til endurvinnslu innanl. 1,3 22,6 190,2 251,0 32,0
  Selt úr skipi erlendis 16,7 0,9 125,0 34,3 -72,6
  Fiskeldi 2,6 1,0 51,3 78,5 53,1
  Aðrar löndunartegundir 11,9 19,4 314,7 626,0 98,9
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar-desember 2008
Milljónir króna Desember Janúar–desember Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 5.126,9 7.964,2 80.251,5 99.089,2 23,5
             
  Höfuðborgarsvæði 1.168,5 1.567,0 14.485,9 16.772,6 15,8
  Suðurnes 906,7 1.325,2 14.605,5 17.230,2 18,0
  Vesturland 177,5 594,1 4.002,4 4.446,4 11,1
  Vestfirðir 229,2 425,4 4.163,4 4.781,9 14,9
  Norðurland vestra 304,9 494,3 4.955,8 5.881,6 18,7
  Norðurland eystra 922,4 1.149,7 11.683,5 13.905,5 19,0
  Austurland 517,4 1.035,3 10.516,8 14.460,6 37,5
  Suðurland 412,3 562,4 7.393,2 9.314,6 26,0
  Útlönd 487,8 810,6 8.445,0 12.295,9 45,6

Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2008 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2007 Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.