FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. MAÍ 2009


Aflaverðmæti 16 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 16 milljörðum króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2009 samanborið við 12,1 milljarð á sama tímabili 2008. Aflaverðmæti hefur því aukist um 3,8 milljarða eða 31,5% á milli ára.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok febrúar orðið 12,5 milljarðar og jókst um 26,9% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam tæpum 9,9 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 7 milljarðar og jókst um 36,6% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam rúmum 2,3 milljörðum og dróst saman um 12,2%, en verðmæti karfaaflans nam rúmum 1,5 milljörðum sem er rúm 112% aukning frá fyrstu tveimur mánuðum ársins 2008. Verðmæti ufsaaflans dróst saman um 15,4% milli ára í 604 milljónir.

Verðmæti flatfiskafla nam rúmum milljarði króna í janúar til febrúar 2009, sem er 107,7% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 34,4% milli ára og nam 2,3 milljörðum.
 
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 7,3 milljörðum króna og jókst um 65,4% frá fyrra ári 2008. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 16,5% milli ára og var um 2,7 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 3,4 milljarðar og stóð nokkurn veginn í stað milli ára en verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam rúmum 2 milljörðum, sem er 30,3% aukning frá árinu 2008.

Verðmæti afla janúar-febrúar 2009    
Milljónir króna Febrúar Janúar–febrúar Breyting frá
    2008 2009 2008 2009 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 7.307,6 8.648,6 12.146,8 15.972,1 31,5
             
Botnfiskur 6.088,0 6.697,4 9.884,8 12.542,7 26,9
  Þorskur 3.290,0 3.671,4 5.172,4 7.065,4 36,6
  Ýsa 1.568,6 1.266,7 2.676,0 2.348,6 -12,2
  Ufsi 466,0 314,5 713,4 603,7 -15,4
  Karfi 444,9 944,4 717,2 1.522,6 112,3
  Úthafskarfi 0,0 0,0 0,0 0,0 -
  Annar botnfiskur 318,4 500,4 605,8 1.002,4 65,5
Flatfisksafli 296,1 569,8 516,8 1.073,3 107,7
Uppsjávarafli 920,2 1.369,6 1.736,8 2.335,2 34,4
  Síld 0,0 365,7 385,9 887,1 129,9
  Loðna 643,0 274,5 963,5 274,5 -71,5
  Kolmunni 228,2 47,6 338,4 396,5 17,2
  Annar uppsjávarafli 49,0 681,8 49,0 777,1 1.485,0
Skel- og krabbadýraafli 2,9 7,0 7,2 13,0 79,7
  Rækja 0,4 6,9 0,4 13,0 2.813,5
  Annar skel- og krabbad.afli 2,4 0,0 6,8 0,0 -99,7
Annar afli 0,5 4,8 1,1 8,0 630,9
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-febrúar 2009  
Milljónir króna Febrúar Janúar–febrúar Breyting frá
    2008 2009 2008 2009 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 7.307,6 8.648,6 12.146,8 15.972,1 31,5
             
  Til vinnslu innanlands 2.615,2 3.883,0 4.440,4 7.346,2 65,4
  Í gáma til útflutnings 778,4 981,2 1.543,2 2.010,6 30,3
  Landað erlendis í bræðslu 35,0 1,7 67,7 72,0 6,4
  Sjófryst 2.413,3 2.348,4 3.476,0 3.442,0 -1,0
  Á markað til vinnslu innanlands 1.297,5 1.262,0 2.331,2 2.715,8 16,5
  Á markað, í gáma til útflutnings 77,9 80,0 175,9 204,2 16,1
  Sjófryst til endurvinnslu innanl. 38,5 1,0 38,7 1,8 -95,5
  Selt úr skipi erlendis 19,0 28,3 19,0 69,7 267,2
  Fiskeldi 2,0 3,3 5,9 5,6 -5,0
  Aðrar löndunartegundir 30,8 59,6 48,9 104,3 113,5
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar-febrúar 2009
Milljónir króna Febrúar Janúar–febrúar Breyting frá
    2008 2009 2008 2009 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 7.307,6 8.648,6 12.146,8 15.972,1 31,5
             
  Höfuðborgarsvæði 1.320,4 1.478,5 2.063,5 2.518,5 22,1
  Suðurnes 1.438,2 1.706,8 2.375,4 3.449,8 45,2
  Vesturland 611,2 697,6 973,9 1.287,1 32,2
  Vestfirðir 357,2 501,3 642,8 907,3 41,1
  Norðurland vestra 509,8 337,3 671,7 547,3 -18,5
  Norðurland eystra 1.084,7 1.256,4 1.767,5 2.119,9 19,9
  Austurland 632,5 852,6 1.214,7 1.660,4 36,7
  Suðurland 535,2 915,5 839,9 1.523,8 81,4
  Útlönd 818,5 902,6 1.597,6 1.957,9 22,6

Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2008 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2007 Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.