FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 27. OKTÓBER 2004

Aflaverðmæti lækkar um 1,5 milljarða króna á milli ára og verðmæti afla sem unninn er erlendis vex mikið

Á fyrstu sjö mánuðum ársins 2004 var aflaverðmæti íslenskra skipa af öllum miðum 41,5 milljarðar króna samanborið við 43 milljarða á sama tímabili 2003. Aflaverðmæti hefur því dregist saman um 3,6% á milli ára eða rúmlega1,5 milljarða króna, á verðlagi hvors árs fyrir sig. Verðmæti botnfiskaflans var 27,8 milljarðar króna og dróst saman um tæplega 200 milljónir króna frá fyrra ári (-0,6%). Verðmæti þorsks var 17,1 milljarður króna og jókst um 1,4 milljarða króna (9%). Verðmæti ýsuaflans nam 3,9 milljörðum króna og hefur verðmæti hans aukist um 800 milljónir króna (25,9%). Verðmæti karfa var 2,4 milljarðar króna og dróst saman um tæpar 900 milljónir króna (-26,8%). Verðmæti úthafskarfaaflans var 1,9 milljarðar króna og hefur dregist saman um þriðjung eða rúmar 900 milljónir króna frá sama tímabili í fyrra. Verðmæti uppsjávaraflans nam 7,7 milljörðum króna og dróst saman um nærri 700 milljónir króna (-8,3%). Þá var verðmæti skel- og krabbadýraaflans 1,8 milljarðar króna en var 2,6 milljarðar króna á sama tímabili 2003 (-29,9%).
     Mikil aukning hefur orðið í útflutningi á ferskum fiski í gámum. Þannig var á tímabilinu fluttur út ferskur fiskur fyrir 3,4 milljarða króna sem er aukning um 1,2 milljarða króna frá fyrra ári (55,7%). Þá hefur verðmæti afla sem keyptur er á íslenskum fiskmörkuðum en sendur utan í gámum að sama skapi aukist um 200 milljónir króna (58,5%). Verðmæti afla í beinni sölu útgerða til vinnslustöðva var 19,7 milljarðar króna samanborið við 20,9 milljarða króna á sama tímabili 2003 og er það samdráttur um 5,4%. Verðmæti sjófrysts afla var tæplega 11 milljarðar króna samanborið við 12,2 milljarða króna á árinu 2003 sem er samdráttur um 9,8%. Verðmæti afla sem seldur var á fiskmörkuðum til fiskvinnslu innanlands var 6,1 milljarður króna og dróst saman um tæplega 200 milljónir króna (2,9%).
     Á Suðurnesjum var unnið úr afla að verðmæti 7,3 milljarðar króna og er það aukning um 235 milljónir króna á milli ára eða 3,3%. Annarsstaðar á landinu er um samdrátt að ræða en hlutfallslega var hann mestur á Vestfjörðum eða 13,4%. Mestur samdráttur milli ára í krónum talið var aftur á móti á Austurlandi, 532 milljónir króna eða sem nemur 8,8%. Verðmæti afla íslenskra skipa sem unninn var erlendis jókst um 1,1 milljarð króna (40,8%) frá fyrra ári og var tæpir 3,8 milljarðar króna á fyrstu sjö mánuðum ársins 2004.
     Upplýsingar um afla og aflaverðmæti1 janúar-júlí 2004 er að finna í talnaefni.



¹ Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2004 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2003. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.