Aflaverðmæti 52 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 51,9 milljarði króna á fyrstu sjö mánuðum ársins 2007 samanborið við 46,4 milljarða á sama tímabili 2006. Aukningin nemur 5,5 milljörðum króna eða 11,8% milli ára. Aflaverðmæti júlímánaðar nam 5,4 milljörðum en í júlí í fyrra var verðmæti afla 6 milljarðar.
Aflaverðmæti botnfisks var í lok júlí orðið 38,2 milljarður miðað við 34,8 milljarða á sama tíma árið 2006 og er um 9,9% aukningu að ræða. Verðmæti þorskafla var 19,7 milljarðar og jókst um 20,6%. Aflaverðmæti ýsu nam 7,6 milljörðum, sem er 16,7% aukning, og ufsaaflinn dróst saman að verðmæti um 7,6%, var 2,4 milljarðar króna.
Verðmæti flatfiskafla dróst saman um 19,4%, nam 2,9 milljörðum króna. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 38,1% og nam 10 milljörðum. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam 4,2 milljörðum samanborið við 2,2 milljarða í fyrra og kolmunna að verðmæti 2,9 milljarðar samanborið við 3,3 milljarða 2006.
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands var 23,3 milljarðar króna, sem er aukning um 5,4 milljarða eða 29,8%. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 18,4%, var 8,7 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 13,8 milljarðar og dróst saman um 8,2% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 5,1 milljörðum sem er 3,7% aukning.
Verðmæti afla janúar–júlí 2007 | ||||||
Milljónir kr. | Breytingar frá | |||||
Júlí | Janúar–júlí | fyrra ári í % | ||||
2006 | 2007 | 2006 | 2007 | Jan.– júlí | ||
Verðmæti alls | 5.997,3 | 5.387,3 | 46.394,6 | 51.870,7 | 11,8 | |
Botnfiskur | 4.371,7 | 3.738,8 | 34.756,7 | 38.201,4 | 9,9 | |
Þorskur | 1.533,7 | 1.332,2 | 16.300,2 | 19.660,6 | 20,6 | |
Ýsa | 785,8 | 957,2 | 6.502,8 | 7.590,7 | 16,7 | |
Ufsi | 725,4 | 283,8 | 2.643,1 | 2.442,7 | -7,6 | |
Karfi | 517,6 | 561,9 | 4.296,8 | 4.243,5 | -1,2 | |
Úthafskarfi | 535,7 | 345,9 | 2.725,0 | 1.721,0 | -36,8 | |
Annar botnfiskur | 273,4 | 257,8 | 2.288,8 | 2.542,9 | 11,1 | |
Flatfiskur | 494,0 | 350,6 | 3.610,6 | 2.911,0 | -19,4 | |
Uppsjávarafli | 1.044,7 | 1.126,5 | 7.230,5 | 9.984,5 | 38,1 | |
Síld | 832,6 | 744,4 | 1.363,7 | 1.466,7 | 7,6 | |
Loðna | 0,0 | 0,0 | 2.179,9 | 4.228,3 | 94,0 | |
Kolmunni | 145,7 | 86,0 | 3.268,1 | 2.935,0 | -10,2 | |
Annar uppsjávarafli | 66,4 | 296,0 | 418,8 | 1.354,5 | 223,4 | |
Skel- og krabbadýraafli | 86,6 | 171,3 | 793,8 | 772,4 | -2,7 | |
Rækja | 10,9 | 55,7 | 265,5 | 167,2 | -37,0 | |
Annar skel- og krabbad.afli | 75,7 | 115,6 | 528,3 | 605,2 | 14,6 | |
Annar afli | 0,3 | 0,0 | 2,9 | 1,5 | -47,9 |
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar–júlí 2007 | ||||||
Milljónir kr. | Breytingar frá | |||||
Júlí | Janúar–júlí | fyrra ári í % | ||||
2006 | 2007 | 2006 | 2007 | Jan.– júlí | ||
Verðmæti alls | 5.997,3 | 5.387,3 | 46.394,6 | 51.870,7 | 11,8 | |
Til vinnslu innanlands | 1.769,1 | 1.970,0 | 17.941,7 | 23.292,0 | 29,8 | |
Í gáma til útflutnings | 732,6 | 777,6 | 4.880,4 | 5.060,6 | 3,7 | |
Landað erlendis í bræðslu | 46,0 | 0,0 | 167,1 | 4,6 | 0,0 | |
Sjófryst | 2.428,5 | 1.774,6 | 15.068,5 | 13.829,6 | -8,2 | |
Á markað til vinnslu innanlands | 898,5 | 746,0 | 7.317,4 | 8.661,2 | 18,4 | |
Á markað, í gáma til útflutnings | 107,7 | 103,5 | 807,7 | 677,5 | -16,1 | |
Sjófryst til endurvinnslu innanl. | 0,0 | 0,0 | 0,0 | 0,0 | 0,0 | |
Selt úr skipi erlendis | 0,0 | 0,0 | 25,6 | 108,3 | 323,3 | |
Fiskeldi | 0,7 | 0,0 | 30,4 | 0,5 | -98,3 | |
Aðrar löndunartegundir | 14,2 | 15,6 | 155,7 | 236,3 | 51,7 |
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar–júlí 2007 | ||||||
Milljónir kr. | Breytingar frá | |||||
Júlí | Janúar–júlí | fyrra ári í % | ||||
2006 | 2007 | 2006 | 2007 | Jan.– júlí | ||
Verðmæti alls | 5.997,3 | 5.387,3 | 46.394,6 | 51.870,7 | 11,8 | |
Höfuðborgarsvæði | 1.437,1 | 1.215,4 | 9.401,4 | 9.016,0 | -4,1 | |
Suðurnes | 791,8 | 742,2 | 7.837,8 | 10.313,1 | 31,6 | |
Vesturland | 50,9 | 114,2 | 1.906,4 | 2.946,4 | 54,6 | |
Vestfirðir | 297,8 | 145,8 | 2.460,2 | 2.555,6 | 3,9 | |
Norðurland vestra | 469,5 | 194,8 | 3.407,6 | 2.957,8 | -13,2 | |
Norðurland eystra | 787,7 | 907,9 | 5.878,0 | 6.867,1 | 16,8 | |
Austurland | 736,5 | 731,7 | 5.784,1 | 7.000,9 | 21,0 | |
Suðurland | 665,7 | 582,5 | 4.813,0 | 5.186,9 | 7,8 | |
Útlönd | 760,3 | 752,8 | 4.906,1 | 5.027,0 | 2,5 |
Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2007 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2006. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.
Talnaefni