FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 17. OKTÓBER 2008


Aflaverðmæti 54 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 54 milljörðum króna á fyrstu sjö mánuðum ársins 2008 samanborið við 52,2 milljarða á sama tímabili árið 2007. Aflaverðmæti hefur aukist um um 1,8 milljarða eða 3,4% á milli ára. Aflaverðmæti í júlí nam 8,7 milljörðum miðað við 5,7 milljarða í júlí 2007.

Aflaverðmæti botnfisks janúar til júlí 2008 nam 39,2 milljörðum og jókst um 2,4% miðað við sama tímabili árið 2007. Verðmæti þorskafla var 19,4 milljarðar og dróst saman um 1,8% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 8,9 milljörðum, jókst um 17,2% og verðmæti karfaaflans nam 3,9 milljörðum sem er 9,4% samdráttur miðað við fyrstu sjö mánuði ársins 2007.

Verðmæti flatfiskafla janúar til júlí nam 3,6 milljörðum og jókst um 22,9% frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla nam 10,2 milljörðum sem er svipað og fyrstu sjö mánuði ársins 2007.
 
Verðmæti afla, sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 21,9 milljarði króna sem er samdráttur um 1,4 milljarða eða 6,1% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 6,5%, nam 8,1 milljarði fyrstu sjö mánuði ársins. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 15,8 milljörðum, jókst um 12,5% og verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 6,6 milljörðum sem er 29,9% aukning frá sama tímabili árið 2007.

Verðmæti afla janúar-júlí 2008    
Milljónir króna Júlí Janúar–júlí Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 5.653,5 8.748,1 52.228,3 53.994,5 3,4
             
Botnfiskur 3.796,4 4.475,0 38.279,8 39.213,6 2,4
  Þorskur 1.364,8 1.439,9 19.709,2 19.350,0 -1,8
  Ýsa 962,3 1.101,6 7.598,7 8.907,8 17,2
  Ufsi 289,7 801,2 2.448,7 3.235,4 32,1
  Karfi 571,0 578,9 4.252,8 3.854,0 -9,4
  Úthafskarfi 345,9 174,9 1.721,0 921,3 -46,5
  Annar botnfiskur 262,8 378,4 2.549,4 2.945,1 15,5
Flatfiskur 377,4 551,6 2.937,8 3.609,6 22,9
Uppsjávarafli 1.308,0 3.513,2 10.219,1 10.231,7 0,1
  Síld 925,2 1.591,9 1.681,7 2.698,6 60,5
  Loðna 0,0 0,0 4.247,2 1.845,5 -56,5
  Kolmunni 86,0 1,3 2.935,0 2.681,4 -8,6
  Annar uppsjávarafli 296,8 1.920,0 1.355,2 3.006,1 121,8
Skel- og krabbadýraafli 171,6 200,7 790,2 922,0 16,7
  Rækja 55,7 52,3 167,2 221,9 32,8
  Annar skel- og krabbad.afli 115,9 148,4 623,0 700,1 12,4
Annar afli 0,0 7,6 1,5 17,7 1.077,5
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-júlí 2008  
Milljónir króna Júlí Janúar–júlí Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 5.653,5 8.748,1 52.228,3 53.994,5 3,4
             
  Til vinnslu innanlands 1.989,1 3.562,8 23.349,9 21.932,6 -6,1
  Í gáma til útflutnings 787,0 1.034,3 5.080,4 6.597,4 29,9
  Landað erlendis í bræðslu 0,0 27,6 4,6 154,1 3.223,6
  Sjófryst 2.003,8 3.181,3 14.090,5 15.847,3 12,5
  Á markað til vinnslu innanlands 741,9 700,7 8.631,4 8.068,1 -6,5
  Á markað, í gáma til útflutnings 103,5 133,1 677,6 702,0 3,6
  Sjófryst til endurvinnslu innanl. 8,1 60,8 27,9 173,4 520,9
  Selt úr skipi erlendis 0,0 0,0 108,3 33,4 -69,1
  Fiskeldi 4,5 0,8 21,4 44,2 106,3
  Aðrar löndunartegundir 15,6 46,5 236,3 442,0 87,0
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar-júlí 2008
Milljónir króna Júlí Janúar–júlí Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 5.653,5 8.748,1 52.228,3 53.994,5 3,4
             
  Höfuðborgarsvæði 1.215,7 1.315,6 9.032,1 8.649,5 -4,2
  Suðurnes 742,9 1.079,0 9.755,1 10.055,8 3,1
  Vesturland 114,6 26,1 2.955,2 2.898,3 -1,9
  Vestfirðir 213,0 114,6 2.696,3 2.323,9 -13,8
  Norðurland vestra 194,8 470,9 2.950,2 2.930,4 -0,7
  Norðurland eystra 976,0 1.344,6 7.165,1 7.478,0 4,4
  Austurland 800,0 2.341,8 7.366,5 7.731,5 5,0
  Suðurland 643,9 1.019,4 5.280,9 5.317,3 0,7
  Útlönd 752,6 1.036,1 5.026,9 6.609,8 31,5

Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2008 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2007 Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.