FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 20. OKTÓBER 2011


Aflaverðmæti 83,6 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 83,6 milljörðum króna fyrstu sjö mánuði ársins 2011 samanborið við 79,8 milljarða á sama tímabili 2010. Aflaverðmæti hefur því aukist um 3,8 milljarða króna eða 4,8% á milli ára.

Aflaverðmæti botnfisks fyrstu sjö mánuði ársins nam 54,7 milljörðum króna og dróst saman um 3,4% sé miðað við sama tímabili árið 2010.. Verðmæti þorskafla var um 26,5 milljarðar og dróst saman um 2% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 6,7 milljörðum og dróst saman um 29%, en verðmæti karfaaflans nam 7,5 milljörðum, sem er 10% aukning miðað við sama tímabil árið  2010. Verðmæti ufsaaflans jókst um 13,1% milli ára í tæpa 4,9 milljarða.

Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 6,4 milljörðum króna fyrstu sjö mánuði ársins  sem er 0,8% aukning frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 30,9% milli ára og nam 19,7 milljörðum.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 37,9 milljörðum króna og jókst um 14,6% frá árinu 2010. Aflaverðmæti sjófrystingar voru 29,3 milljarðar sem er 6,4% aukning frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands nam um 11,9 milljörðum sem er 2,6% samdráttur miðað við sama tímabil árið 2010.

Verðmæti afla janúar-júlí 2011      
Milljónir króna Júlí Janúar–júlí Breyting frá
    2010 2011 2010 2011 fyrra ári í %
Verðmæti alls 11.358,8 13.532,7 79.758,6 83.562,9 4,8
Botnfiskur 5.987,3 6.264,3 56.668,2 54.731,2 -3,4
Þorskur 2.390,5 2.244,8 26.998,8 26.451,9 -2,0
Ýsa 887,2 510,7 9.453,0 6.708,3 -29,0
Ufsi 895,2 991,2 4.318,0 4.884,6 13,1
Karfi 553,0 1.121,9 6.802,6 7.481,7 10,0
Úthafskarfi 739,5 818,5 3.649,0 4.027,9 10,4
Annar botnfiskur 522,0 577,1 5.446,8 5.176,9 -5,0
Flatfisksafli 934,7 640,4 6.340,3 6.392,1 0,8
Uppsjávarafli 4.035,4 6.284,9 15.059,7 19.718,7 30,9
Síld 1.115,8 1.150,0 2.486,1 2.243,5 -9,8
Loðna 0,0 0,0 2.494,4 8.683,6 248,1
Kolmunni 3,0 0,6 3.134,7 152,8 -95,1
Annar uppsjávarafli 2.916,7 5.134,3 6.944,5 8.638,8 24,4
Skel- og krabbadýraafli 399,2 283,7 1.599,6 1.830,8 14,5
Rækja 209,1 184,9 998,0 1.278,0 28,1
Annar skel- og krabbad.afli 190,1 98,8 601,6 552,8 -8,1
Annar afli 2,2 59,4 90,8 890,1 880,8

Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-júlí 2011    
Milljónir króna Júlí Janúar–júlí Breyting frá
    2010 2011 2010 2011 fyrra ári í %
Verðmæti alls 11.358,8 13.532,7 79.758,6 83.562,9 4,8
Til vinnslu innanlands 4.146,3 4.433,2 33.114,6 37.937,5 14,6
Í gáma til útflutnings 632,3 650,8 5.828,7 3.809,2 -34,6
Landað erlendis í bræðslu 0,0 0,0 83,6 145,5 74,1
Sjófryst 5.397,1 7.108,7 27.508,8 29.264,1 6,4
Á markað til vinnslu innanlands 1.083,8 1.303,1 12.189,3 11.876,0 -2,6
Sjófryst til endurvinnslu innanl. 4,2 0,0 145,7 47,6 -67,3
Selt úr skipi erlendis 0,0 0,0 0,0 0,0
Fiskeldi 8,8 0,0 63,5 0,0
  Aðrar löndunartegundir 86,3 37,0 824,5 482,9 -41,4

Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar-júlí 2011  
Milljónir króna Júlí Janúar–júlí Breyting frá
    2010 2011 2010 2011 fyrra ári í %
Verðmæti alls 11.358,8 13.532,7 79.758,6 83.562,9 4,8
Höfuðborgarsvæði 2.191,6 2.493,3 15.163,1 15.645,1 3,2
Suðurnes 1.383,9 1.659,2 13.569,1 14.393,6 6,1
Vesturland 84,3 166,6 3.987,4 4.578,6 14,8
Vestfirðir 494,7 763,4 4.148,7 4.465,6 7,6
Norðurland vestra 737,9 953,6 5.629,3 5.740,0 2,0
Norðurland eystra 1.907,6 2.498,4 11.605,0 12.457,4 7,3
Austurland 2.280,3 2.367,0 10.867,0 11.694,2 7,6
Suðurland 1.652,3 1.980,4 8.922,5 10.633,7 19,2
  Útlönd 626,4 650,8 5.866,4 3.954,6 -32,6

Talnaefni


 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.