FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 01. OKTÓBER 2004

Aflaverðmætið 36 milljarðar króna 

Á fyrri helmingi ársins 2004 var aflaverðmæti íslenskra skipa af öllum miðum 36 milljarðar króna samanborið við 37,2 milljarða á sama tímabili 2003. Aflaverðmæti hefur því dregist saman um 3,4% á milli ára eða rúmlega1,2 milljarða króna, á verðlagi hvors árs fyrir sig. Verðmæti botnfiskaflans var 24,6 milljarðar króna og dróst saman um tæplega 500 milljónir króna (-1,9%). Verðmæti þorsks var 15,7 milljarðar króna og jókst um 1,4 milljarða króna (10%). Verðmæti ýsuaflans nam 3,5 milljörðum króna og jókst verðmæti hans um 740 milljónir króna (26,4%). Verðmæti karfa var 2,1 milljarðar króna og dróst saman um 585 milljónir króna (-21,5%). Verðmæti úthafskarfaaflans á þessu tímabili dróst mikið saman og var einungis tæpar 900 milljónir króna og er það samdráttur um 1,5 milljarða króna á milli ára (-63%). Verðmæti uppsjávaraflans nam 6,4 milljörðum króna og dróst saman um nærri 300 milljónir króna (-4,3%). Þá var verðmæti skel- og krabbadýraafla 1,4 milljarðar króna en var 2,1 mmilljarðar króna á sama tímabili 2003 (-32,6%).
     Verðmæti afla í beinni sölu útgerða til vinnslustöðva var á tímabilinu 17,6 milljarðar króna samanborið við 18,3 milljarða á árinu 2003 og er það samdráttur um 4,2%. Verðmæti sjófrysts afla var 9 milljarðar króna samanborið við 10 milljarða króna á árinu 2003 sem er samdráttur um 11%. Verðmæti afla sem seldur var á fiskmörkuðum til fiskvinnslu innanlands dróst saman um 3,1%, var 5,5 milljarðar króna samanborið við 5,6 milljarða króna á sama tímabili 2003. Í gámum var fluttur út ferskur fiskur fyrir 2,9 milljarða króna sem er aukning frá fyrra ári um rúman milljarð króna (54,5%).
     Á Suðurnesjum var unnið úr afla að verðmæti 6,7 milljarðar króna og er það aukning um 355 milljónir króna á milli ára eða 5,6%. Hlutfallslega er samdráttur aflaverðmæta til vinnslu mestur á Vestfjörðum eða 14,4% en mestur samdráttur milli ára í krónum talið varð á höfuðborgarsvæðinu, 567 milljónir króna eða sem nemur 10,2%. Verðmæti afla íslenskra skipa sem unninn var erlendis jókst um 890 milljónir króna (38,6%) og var 3,2 milljarðar króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2004.
     Upplýsingar um afla og aflaverðmæti janúar-júní 2004 er að finna í talnaefni.

¹ Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2004 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2003. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.