FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 16. SEPTEMBER 2008


Aflaverðmæti 45 milljarðar króna
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 45 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2008 samanborið við 46,6 milljarða á sama tímabili árið 2007. Aflaverðmæti hefur dregist saman um 1,6 milljarða eða 3,4% á milli ára. Aflaverðmæti í júní nam 5,3 milljörðum miðað við 6,1 milljarð í júní 2007.

Aflaverðmæti botnfisks janúar til júní 2008 nam 34,7 milljörðum og jókst um 0,6% miðað við sama tímabili árið 2007. Verðmæti þorskafla var 17,9 milljarðar og dróst saman um 2,5% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 7,8 milljörðum, jókst um 17,4% og verðmæti karfaaflans nam 3,3 milljörðum sem er 11,1% samdráttur miðað við fyrstu sex mánuði ársins 2007.

Verðmæti flatfiskafla janúar til júní nam 3 milljörðum og jókst um 15,3% frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla nam 6,7 milljörðum sem er 24,6% samdráttur miðað við sama tímabil árið 2007.
 
Verðmæti afla, sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 18,2 milljarði króna sem er samdráttur um 3,1 milljarða eða 14,7% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 6,6%, nam 7,4 milljörðum fyrstu sex mánuði ársins. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 12,6 milljörðum, jókst um 4,0% og verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 5,6 milljörðum sem er 29,3% aukning frá sama tímabili árið 2007.

Verðmæti afla janúar-júní 2008    
Milljónir króna Júní Janúar–júní Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 6.105,8 5.275,0 46.574,8 44.979,9 -3,4
             
Botnfiskur 4.471,8 3.818,7 34.483,3 34.688,6 0,6
  Þorskur 1.709,3 1.436,1 18.344,4 17.881,3 -2,5
  Ýsa 723,9 903,7 6.636,4 7.794,2 17,4
  Ufsi 259,6 220,0 2.159,0 2.433,2 12,7
  Karfi 371,4 339,4 3.681,8 3.274,0 -11,1
  Úthafskarfi 1.024,0 435,1 1.375,1 746,3 -45,7
  Annar botnfiskur 383,6 484,4 2.286,6 2.559,6 11,9
Flatfiskur 451,3 547,6 2.560,4 2.951,5 15,3
Uppsjávarafli 960,4 711,1 8.911,1 6.718,5 -24,6
  Síld 615,0 656,1 756,5 1.106,7 46,3
  Loðna 0,0 0,0 4.247,2 1.845,5 -56,5
  Kolmunni 345,2 0,0 2.848,9 2.680,1 -5,9
  Annar uppsjávarafli 0,1 55,0 1.058,5 1.086,1 2,6
Skel- og krabbadýraafli 222,4 197,5 618,5 614,4 -0,7
  Rækja 28,6 4,4 111,5 104,8 -6,0
  Annar skel- og krabbad.afli 193,8 193,2 507,0 509,6 0,5
Annar afli 0,0 0,0 1,5 6,9 363,2
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-júní 2008  
Milljónir króna Júní Janúar–júní Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 6.105,8 5.275,0 46.574,8 44.979,9 -3,4
             
  Til vinnslu innanlands 2.396,2 1.773,5 21.360,7 18.223,9 -14,7
  Í gáma til útflutnings 630,6 953,5 4.293,4 5.550,7 29,3
  Landað erlendis í bræðslu 0,0 0,0 4,6 126,5 2.627,6
  Sjófryst 2.051,0 1.497,4 12.086,7 12.570,9 4,0
  Á markað til vinnslu innanlands 929,0 873,0 7.889,5 7.367,3 -6,6
  Á markað, í gáma til útflutnings 68,2 106,0 574,1 568,8 -0,9
  Sjófryst til endurvinnslu innanl. 0,9 1,4 19,9 99,4 400,6
  Selt úr skipi erlendis 0,0 0,0 108,3 33,4 -69,1
  Fiskeldi 6,2 14,5 16,9 43,4 156,4
  Aðrar löndunartegundir 23,6 55,7 220,7 395,5 79,2
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar-júní 2008
Milljónir króna Júní Janúar–júní Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 6.105,8 5.275,0 46.574,8 44.979,9 -3,4
             
  Höfuðborgarsvæði 1.165,9 944,3 7.816,4 7.311,4 -6,5
  Suðurnes 1.049,4 825,3 9.012,2 8.963,0 -0,5
  Vesturland 180,2 157,2 2.840,5 2.869,3 1,0
  Vestfirðir 372,6 188,4 2.483,3 2.129,3 -14,3
  Norðurland vestra 464,8 247,2 2.755,4 2.453,7 -11,0
  Norðurland eystra 884,3 866,6 6.189,1 6.013,7 -2,8
  Austurland 920,9 607,3 6.566,5 5.372,1 -18,2
  Suðurland 469,5 520,5 4.637,1 4.297,1 -7,3
  Útlönd 598,2 918,1 4.274,3 5.570,3 30,3

Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2008 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2007 Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.