FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 30. ÁGÚST 2004

Aflaverðmætið 30 milljarðar króna

Á fyrstu fimm mánuðum ársins 2004 var aflaverðmæti íslenskra skipa af öllum miðum 30 milljarðar króna samanborið við nærri 31,4 milljarða á sama tímabili 2003. Aflaverðmæti hefur því dregist saman um 4,2% á milli ára eða um 1,3 milljarða króna, á verðlagi hvors árs fyrir sig. Verðmæti botnfiskaflans var 21,4 milljarðar króna og dróst saman um tæplega 200 milljónir króna (-0,8%). Verðmæti þorsks var 14 milljarðar króna og jókst um 1,2 milljarða króna (9,6%). Verðmæti ýsuaflans nam 3,2 milljörðum króna og jókst verðmæti hans um 670 milljónir króna (26,1%). Verðmæti karfa var 1,9 milljarðar króna og dróst því saman um 575 milljónir króna (-23,1%) en verðmæti úthafskarfaaflans var einungis tæpar 330 milljónir króna og er það eins milljarðs króna samdráttur á milli ára (-81,4%). Verðmæti uppsjávaraflans nam 5,3 milljörðum króna og dróst saman um rúmar 160 milljónir króna (-3,0%). Þá var verðmæti skel- og krabbadýraafla 946 milljónir króna en var 1.650 milljónir króna á sama tímabili 2003 (-42,7%).
       Verðmæti afla í beinni sölu útgerða til vinnslustöðva var á tímabilinu 15 milljarðar króna samanborið við 15,7 milljarða á árinu 2003 og er það samdráttur um 4,7%. Verðmæti sjófrysts afla var 7 milljarðar króna samanborið við 8 milljarða króna á árinu 2003 en þetta er sama upphæð og nemur lækkun verðmæta úthafskarfaaflans á milli ára. Verðmæti afla sem seldur var á fiskmörkuðum til fiskvinnslu innanlands dróst saman um 5,1%, var 4,7 milljarðar króna samanborið við tæplega 5 milljarða króna á sama tímabili 2003. Í gámum var fluttur út ferskur fiskur fyrir 2,8 milljarða króna sem er aukning frá fyrra ári um tæpan milljarð króna (53,2%).  
       Á Suðurnesjum var unnið úr afla að verðmæti 6 milljarða króna og er það aukning um 248 milljónir króna á milli ára eða 4,3%. Mestur samdráttur milli ára í krónum talið varð á höfuðborgarsvæðinu, 469 milljónir króna eða sem nemur 10%. Verðmæti afla íslenskra skipa sem unninn var erlendis jókst um 800 milljónir og var 2,8 milljarðar króna á fyrstu fimm mánuðum ársins 2004.

¹ Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2004 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2003. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.