FRÉTT SJÁVARÚTVEGUR 15. ÁGÚST 2008

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 39,2 milljörðum króna á fyrstu fimm mánuðum ársins 2008 samanborið við 40,5 milljarða á sama tímabili árið 2007. Aflaverðmæti hefur dregist saman um 1,3 milljarða eða 3,1% á milli ára. Aflaverðmæti maímánaðar nam 7,6 milljörðum miðað við 7,7 milljarða í maí 2007.

Aflaverðmæti botnfisks janúar til maí 2008 nam 30,5 milljörðum sem er svipaður afli og á  sama tímabili árið 2007. Verðmæti þorskafla var 16,2 milljarðar og dróst saman um 2,7% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 6,9 milljörðum, jókst um 15,8% og verðmæti ufsaaflans nam 2,2 milljörðum sem er 16,5% aukning miðað við fyrstu fimm mánuði ársins 2007.

Verðmæti flatfiskafla janúar til maí nam 2,3 milljörðum og jókst um 10,2% frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla nam 6 milljörðum sem er 24,7% samdráttur miðað við sama tímabil árið 2007.
 
Verðmæti afla, sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 16,1 milljarði króna sem er samdráttur um 2,9 milljarða eða 15,0% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands dróst saman um 6,8%, nam 6,5 milljörðum fyrstu fimm mánuði ársins. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 11,0 milljörðum, jókst um 9,3% og verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 4,6 milljörðum sem er 25,7% aukning frá sama tímabili árið 2007.

Verðmæti afla janúar-maí 2008    
Milljónir króna Maí Janúar–maí Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 7.729,8 7.620,9 40.469,0 39.194,4 -3,1
             
Botnfiskur 5.677,3 5.636,7 30.011,6 30.460,9 1,5
  Þorskur 3.007,7 2.915,3 16.635,1 16.191,0 -2,7
  Ýsa 1.000,8 1.058,3 5.912,5 6.848,0 15,8
  Ufsi 472,3 539,3 1.899,4 2.212,1 16,5
  Karfi 448,7 347,2 3.310,4 2.907,5 -12,2
  Úthafskarfi 351,1 311,2 351,1 311,2 -11,4
  Annar botnfiskur 396,6 465,3 1.903,0 1.991,0 4,6
Flatfiskur 709,8 906,0 2.109,1 2.324,7 10,2
Uppsjávarafli 1.071,3 827,3 7.950,7 5.985,2 -24,7
  Síld 61,5 64,7 141,4 450,7 218,6
  Loðna 0,0 0,0 4.247,2 1.845,5 -56,5
  Kolmunni 1.009,8 762,6 2.503,7 2.657,9 6,2
  Annar uppsjávarafli 0,0 0,0 1.058,4 1.031,1 -2,6
Skel- og krabbadýraafli 271,3 248,7 396,1 416,9 5,2
  Rækja 54,0 50,8 82,9 100,5 21,2
  Annar skel- og krabbad.afli 217,3 197,9 313,2 316,4 1,0
Annar afli 0,0 2,2 1,5 6,8 361,1
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar-maí 2008  
Milljónir króna Maí Janúar–maí Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 7.729,8 7.620,9 40.469,0 39.194,4 -3,1
             
  Til vinnslu innanlands 3.808,7 2.891,4 18.964,5 16.116,4 -15,0
  Í gáma til útflutnings 864,6 1.046,8 3.662,8 4.583,5 25,1
  Landað erlendis í bræðslu 0,0 0,0 4,6 104,3 2.148,4
  Sjófryst 1.587,4 2.179,2 10.035,6 10.968,8 9,3
  Á markað til vinnslu innanlands 1.289,9 1.242,1 6.960,5 6.488,1 -6,8
  Á markað, í gáma til útflutnings 102,0 121,9 505,9 462,8 -8,5
  Sjófryst til endurvinnslu innanl. 0,8 19,9 18,9 97,1 413,0
  Selt úr skipi erlendis 15,5 0,0 108,3 33,4 -69,1
  Fiskeldi 1,9 0,0 10,7 0,2 -98,3
  Aðrar löndunartegundir 59,0 119,5 197,1 339,8 72,4
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar-maí 2008
Milljónir króna Maí Janúar–maí Breyting frá
    2007 2008 2007 2008 fyrra ári í %
             
Verðmæti alls 7.729,8 7.620,9 40.469,0 39.194,4 -3,1
             
  Höfuðborgarsvæði 1.168,7 1.224,2 6.650,5 6.332,2 -4,8
  Suðurnes 1.397,2 1.318,5 7.962,8 7.848,2 -1,4
  Vesturland 367,7 423,2 2.660,3 2.682,5 0,8
  Vestfirðir 386,7 424,3 2.110,7 1.905,3 -9,7
  Norðurland vestra 381,8 554,7 2.290,6 2.206,4 -3,7
  Norðurland eystra 1.203,9 1.057,0 5.304,8 5.131,0 -3,3
  Austurland 1.236,4 867,7 5.645,6 4.690,9 -16,9
  Suðurland 732,8 737,2 4.167,5 3.776,6 -9,4
  Útlönd 854,6 1.014,0 3.676,1 4.621,3 25,7

Þessar upplýsingar byggja á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2008 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2007 Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1-2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.